Til sölu atvinnuhúsnæði við Nesflóa 1, Akranesi.
Fjárfestingatækifæri! Um er að ræða
171,6 fm atvinnurými (séreign 101) í nýlegu atvinnuhúsi í
Grænum iðngörðum á Akranesi.
Nánari upplýsingar veita:Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurHúsið er byggt á steyptum grunni með stálburðarvirki og ytra byrði úr yleiningum. Rýmið er hluti af húsi sem samanstendur af 7 séreignarhlutum og sameign með inntaksrými.
Innra skipulag og frágangur:Milliloft er fullbúið með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Háir gluggar í þakbroti veita góða dagsbirtu.
Lóð og aðkoma:Lóð er fullfrágengin og malbikuð. Svæðið er afgirt með girðingu og símastýrðu hliði. Merkt og upphituð bílastæði eru fyrir framan húsið. Aðgangsstýringar, lyklalaust aðgengi og öryggismyndavélar eru til staðar.
Leigutækifæri:Miklir leigumöguleikar en aðrar eignir í Nesflóa eru í virkri útleigu. Háar leigutekjur.
Skilalýsing frá seljandaHúsið er byggt á einangruðum sökkli og botnplötu úr járnbentri steinsteypu. Útveggir eru úr stáli með yleiningum. Þak er fullfrágengið með 150 mm einangrun og þakdúk með UV-vörn. Þakniðurföll eru tengd fráveitu og blágrænum ofanvatnslausnum.
Milliloft er skilað fullbúnu með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Lóð er malbikuð og afgirt. Rafstýrt og símastýrt hlið er inn á lóð og gönguhurð fyrir gangandi.
Gjöld og skilmálarSeljandi greiðir öll lóðargjöld til bæjarins og heimæðagjöld vegna vatns og rafmagns. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
Áhvílandi er á eigninni virðisaukaskattskvöð og miðast sala við að kaupandi yfirtaki kvöðina.
Allar upplýsingar í söluyfirliti eru fengnar frá seljanda og úr opinberum gögnum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.