Fasteignaleitin
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Skráð 21. sept. 2025

Vesturberg 145

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
259.1 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
148.900.000 kr.
Fermetraverð
574.682 kr./m2
Fasteignamat
125.600.000 kr.
Brunabótamat
126.375.000 kr.
Mynd af Helen Sigurðardóttir
Helen Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Geymsla 3.1m2
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2050303
Landnúmer
112035
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler / upprunalegir
Þak
Upprunalegt / þakpappi og þakjárn endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Sbr. ástandsyfirlýsingu seljanda : Það kom upp leki meðfram skorsteini, var lagfært.
Seljandi fann gamlan raka/ myglu á bakvið skáp í holi hjá svefnherbergi eftir að hann kaupir( kemur líka stundum vegna lélegrar loftunar ), tók allt frá og hreinsaði, sett nýtt gólfefni og nýr skápur og á allt að vera í góðu lagi í dag. 
Uppfært 24. nóvember 2025 : Þéttingar voru yfirfarnar í kringum skorsteinin í sumar og lagfært og hélt vel framan af en nú var að koma upp að það eru komin ný ummerki um að sé ekki að halda svo seljandi er kominn í samskipti við nýjan verktaka og er að fá verðhugmynd í lagfæringu á sinn kostnað, þeir ætla að  “fjarlægja allar áfellur, hattinn yfir skorsteininum, laga / bæta þéttingar á samskeyti þaks og steins. Láta síðan blikksmiðju smíða hattinn uppá nýtt og þeir ganga þá frá þéttingu og vinnu á verkstað.”
 
Reisulegt og fallegt einbýlishús með bílskúr og glæsilegri lóð á góðum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í Reykjavík
Eignin er neðst í botnlangagötu alveg við grænt svæði.

* Baðherbergi hannað af Rut Kára.
* Lóðin var hönnuð af Stanislas Bohic og er sérlega snyrtileg með hellulögn og verönd með skjólvegg , heitum potti og geymsluhúsi.
* Húsið var klætt með viðhaldsléttri klæðningu 2008, hannað var Birni Skaptasyni hjá Atelier, arkitektum.

* Einstakt útsýni til suðurs, norðurs og vestur yfir Reykjavík og út til sjávar.
* 5-6 svefnherbergi og rúmgóðar stofur.
* Fjölskylduvæn staðsetning við fallega náttúru.


Endurbætur á eigninni tiltelur ma.:
* 2012 var þakpappi og þakjárn endurnýjað
* 2015 var baðherbergi og gestasalerni á aðalhæð endurnýjað
* Ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta
* Húsið var klætt að utan fyrir nokkrum árum

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. Fí er 259,10 m2 og þar af er bílskúr skráður 29,2 m2 og útigeymsla 3,1 m2. 

1. hæð :
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hol er flísalagt og rúmgott með þakgluggum.  
Gestasalerni er flísalagt með handlaug og wc.
Stofa 1 er rúmgóð og flísalögð með hornglugga. Útgengt út á hellulagða verönd með skjólvegg og heitum potti. 
Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu með helluborði, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og gott skápapláss. Morgunverðarkrókur við vegg. Útgengt út á verönd til norðurs með mikla möguleika. 
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask og skápum.
Svefnherbergisgangur er með parket á gólfi og opnast í rúmgott hol með þakglugga og nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt baðkari og sér-sturtu, fallegri innréttingu og lýsingu.  Endurnýjað árið 2015. Hannað af Rut Kára.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp. Útgengt út á lóð.
Svefnherbergi 3 var áður tvö en hefur verið sameinað í eitt stórt herbergi.

2. hæð :
Stigi er teppalagður og leiðir upp í rúmgóða stofu.
Stofa 2 er í dag nýtt sem svefnherbergi 5. Parket á gólfi og arinn. Stórbrotið útsýni. 
Glerlistaverk eftir myndlistakonuna Stellu Guðmundsdóttir eru í glugga í stiga og á 2. hæð. 

Kjallari :
Stigi er teppalagður og leiðir niður í hol.
Geymslurými undir stiga hefur verið breytt í krúttlegt leikrými.
Svefnherbergi 4 er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa. Parket á gólfi. Gæti einnig verið nýtt sem hjónasvíta með eigin bað og fataherbergi.
Salerni með handlaug og wc.
Lítil geymsla er þar innaf sem gæti einnig verið fataherbergi.
Geymsla er rúmgóð með máluðu gólfi. 

Bílskúr er í bílskúrslengju ofan við húsið.  Skráður 29,2 m2. Upphitaður með heitu og köldu vatni.

Bílastæði er við húsið og einnig fleiri bílastæði ofar í götunni hjá bílskúrslengjunni.

Öll helsta þjónusta er í göngufæri eins og verslanir, sund, heilsurækt, skóla og heilsugæslu, sem og frábærar gönguleiðir, íþróttir og útivistarsvæði við Elliðaárdal svo fátt eitt sé nefnt.
Fallegt grænt svæði aðgengilegt við húsið og margar vinsælar gönguleiðir til suðurs og norðurs frá þeim punkti.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/06/202398.000.000 kr.117.000.000 kr.259.1 m2451.563 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1980
2.9 m2
Fasteignanúmer
2050303
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.100.000 kr.
Byggt 2005
0.3 m2
Fasteignanúmer
2050303
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.725.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 9
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
313
956 þ.kr./m2
123.500.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 53
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 53
Holtsvegur 53
210 Garðabær
136.2 m2
Fjölbýlishús
423
998 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 13
Bílskúr
Skoða eignina Furuvellir 13
Furuvellir 13
221 Hafnarfjörður
226.6 m2
Einbýlishús
513
692 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Blönduhlíð 23
105 Reykjavík
134.5 m2
Fjölbýlishús
614
891 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin