Gunnarssund 9, 220 Hafnarfjörður. Opið hús laugardaginn 16 nóvember kl 13:00-13:30. Eignin verður ekki sýnd fyrir opna húsið.
Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. kynna: Glæsilegt vandað einbýlishús, byggt árið 2011, staðsett í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið er hið vandaðasta og hefur ekkert verið sparað til við hönnun og byggingu húsins. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 134,7 fm2 . Tvö baðherbergi eru í húsinu. Timbur/hellur/verönd/pallur. Að mörguleyti einstök eign á þessu frábæra stað. Sjón er sögu ríkari ! Nánari lýsing neðri hæð: Góð hellulögð (hiti) aðkoma yfirbyggð að inngangi. Komið inn í flísalagt
anddyri/forstofu. Inn af forstofu er
baðherbergi með flísum á gólfi og upphengdu wc. Inn af baðherbergi er
þvottaherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Glæsilegt og rúmgott eldhús með vandaðri innréttingu með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, glæsileg
eyja með spanhelluborði og vínkæli. Eldhúsið er opið inn í rúmgóða
stofuna/borðstofuna sem eru óvenju bjartar og fallegar. Þaðan er síðan
útgengt í garðinn, þ.e. pallinn í suður. Nánari lýsing efri hæð: Vandaður
glæsilegur stigi upp á efri hæð með viðarþrepum og glerhandriði með stálramma. Á efri hæð húsins er rúmgot
t alrými með mikilli lofthæð (sjónvarpsherbergi í dag) og veita
þakgluggar fallega birtu, parket á gólfi. Í þessu rými er hægt að setja upp 1-2 herbergi. Rúmgott
baðherbergi með flísum í hólf og gólf,
upphengt wc og sturta. Gott
barnaherbergi inn af alrýminu/holinu.Velux gluggi. Annað minna
barnaherbergi/ er geymsla á teikningu. Velux gluggi.
Stórt hjónaherbergi með innb.skápum. Vönduð gólfefni, sérmíðaðar innréttingar eru í húsinu. Glæsilegir gluggar. Húsið er bárujárnsklætt timburhús og því viðhaldslétt, byggt 2011.
Hiti í gólfum á neðri hæð og ofnar á efri hæð.
Hiti í stétt fyrir utan húsið.
Hægt er að útbúa tvennar svalir á efri hæðinni. Lóðin er lítil og snyrtileg, en þar er m.a. timbur pallur með skjólgirðingu í suður og norður, einnig hellulögð verönd. Tengi fyrir rafhleðslu fylgir. (f.rafmagsbíl) Við inngang er síðan útigeymsla.
Nánari uppl. veitir Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is ogValgerður Ása Gissuradóttir lgf. s. 791-7500 vala@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.