Fasteignaleitin
Skráð 12. apríl 2024
Deila eign
Deila

Brekkubyggð 7

Jörð/LóðVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
Verð
1.390.000 kr.
Fasteignamat
1.545.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Framkvæmdastjóri
Útsýni
Fasteignanúmer
2334708
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Leigulóð
Brekkubyggð 7, 320 Borgarbyggð (Sumarhúsalóð)

Um er að ræða 7.318 fm leigulóð í landi Bjarnastaða í Hvítársíðu, aðeins 5-10 min akstur frá Húsafelli. Lóðin er leigð til 25 ára í senn með forleigurétti áfram að þeim tíma loknum. Stofngjald í upphafi eru 1.390.000 kr. Árlegt leigugjald lóðar er 256.569 kr. Hitaveita kostar um 880.000 kr í tengigjald og mánaðargjaldið er um 9-10 þúsund krónur. Gámastöð fyrir sorp er á svæðinu.

Vatn og rafmagn við lóðarmörk, leigusalar sjá um að vegir séu akfærir að lóðarmörkum, bílastæði skulu vera innan lóðarmarka og sér leigutaki um að útfæra þau. Hitaveita er á svæðinu og er sérstakt félag um rekstur hennar. Möguleiki er því fyrir leigutaka að fá inn heitt vatn gegn greiðslu.

Mjög virkt sumarhúsafélag er á svæðinu og er Facebook síða þar sem hægt er að sjá með færð og þjónustu á hverjum tíma. Leigusalar sjá um að mokstur og sinna því vel. Hitaveitan er í eigu sumarhúsaeigenda og er sér Facebook síða um þau mál. Lóðin snýr á móti suðri, er skógi vaxin, með fallegu útsýni yfir sveitina í kring og gott skjól fyrir norðanáttinni.


Helstu ákvæði til byggingar skv. skipulagi, sjá nánar í myndum texta og skilmála:
Hámarksstærð húsa miðast við 265 fm í heildarbyggingarmagn.
Hámarsstærð smáhúsa verði ekki meiri en 20 fm.
Hæsti punktur þaks verði ekki hærri en 5,5 m yfir aðalgólfi.
Þakhalli 15-25 gráður.
Sefna mænisása skal samræmd.
Dökkir jarðlitir æskilegir á öllum mannvirkjum.
Mannvirki séu ekki nær lóðarmörkum en 10 metra.


Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang: bjorgvin@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasasali, s. 692-3344, netfang: hronn@fasteignaland.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
GötuheitiPóstnr.m2Verð
320
1,4
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache