Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2026

Kjarrás 5

SumarhúsVesturland/Akranes-301
11.5 m2
1 Herb.
Verð
15.900.000 kr.
Fermetraverð
1.382.609 kr./m2
Fasteignamat
7.390.000 kr.
Brunabótamat
7.790.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Fasteignanúmer
2275583
Landnúmer
189798
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
VATNALÓÐ - EIGNARLÓÐ, (samþykktar teikningar af tæplega 67 fm. sumahúsi, geta fylgt með í kaupunum.)

Árni Björn Erlingsson lgf. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Kjarrás 5, 301 Akranes, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 227-5583 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Kjarrás 5 er 6.250 fm eignalóð með eldra húsi sem er skráð samkv. HMS 11.5 fm. 

Lýsing eignar:

Um er að ræða 6.250 fm eignarlóð í landi Glammastaða við Þórisvatn í Svínadal. Lóðin er vel staðsett vatnalóð, norðanmeginn í dalnum, með útsýni yfir Þórisstaði á hinum bakka vatnsins í suðri. Gamalt hús (11 fm) er á steyptum sökkli við vatnið (selst í núverandi ástandi).  Vegur er niður að húsinu og bílastæði. Kalt vatn er komið í húsið  og rafmagn er við lóðarmörk. Heimilt er að byggja rúmlega 180 fm sumarhús á byggingarreit u.þ.b. 50 m frá vatninu. Akstur frá Reykjavík er ca. 45 min. 

Teikningar:
Staðan varðandi teikningar er sú að aðaluppdrættir og byggingaráform voru samþykkt af byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar í apríl 2025.
Gildi samþykkis rennur þó út ef framkvæmdir hefjast ekki innan 2ja ára frá samþykkt.
Meðfylgjandi eru samþykktir aðaluppdrættir af húsinu.
Það er einnig búið að klára sérteikningar arkitekta og eins verkfræðinga, þ.e.a.s. burðarþols-, lagna- og raflagnateikningar.
Þær teikningar hafa þó ekki verið lagðar inn til byggingarfulltrúa. 

Stutt í sundlaug, golf og aðra þjónustu.


Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásabyggð 5
Ásabyggð_5-33.jpg
Skoða eignina Ásabyggð 5
Ásabyggð 5
846 Flúðir
93.9 m2
Sumarhús
423
478 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Valhnjúkasund 12
Valhnjúkasund 12
805 Selfoss
45.4 m2
Sumarhús
12
705 þ.kr./m2
32.000.000 kr.
Skoða eignina Suðurbraut 22
Skoða eignina Suðurbraut 22
Suðurbraut 22
801 Selfoss
10,291 m2
Jörð/Lóð
2 þ.kr./m2
15.900.000 kr.
Skoða eignina Sturlureykir - lóð 5 1
Sturlureykir - lóð 5 1
320 Reykholt í Borgarfirði
Jörð/Lóð
13.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin