Álfkonuhvarf 15, 203 Kópavogur.
Rúmgott og fjölskylduvænt parhús á tveimur hæðum með
fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum,
tvennum svölum og bílskúr. Skráð stærð er
207,9 fm. Við húsið er
142 fm pallasvæði með heitum potti, skjólgóðum bakgarði og gróðurhúsi. Auk svefnherbergjanna hefur verið innréttað
aukaherbergi í hluta bílskúrs, í rými sem er merkt geymsla á teikningum. Fyrir framan húsið er bílaplan með pláss fyrir fjóra bíla.
Hér sameinast gott rými fyrir fjölskylduna og útiaðstaða sem býður upp á fjölbreytta nýtingu.
Skráð stærð er 207,9 fm
Helstu atriði- Fimm svefnherbergi auk innréttaðs aukaherbergis í bílskúr
- Tvö baðherbergi, eitt á hvorri hæð, og tvennar svalir.
- 142 fm pallsvæði, heitur pottur og bakgarður sem var endurgerður sumarið 2025.
- Bílskúr, bílaplan fyrir fjóra bíla, gróðurhús og undirbúningur fyrir útieldhús.
- Þak að hluta til endurnýjað 2024
Nánari upplýsingar veita:Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsingVið Álfkonuhvarf 15 er að finna rúmgott parhús þar sem herbergjafjöldi og góð útiaðstaða henta vel stærri fjölskyldum. Húsið er á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, einu á hvorri hæð. Tvennar svalir og stórt pallasvæði gefa heimilisfólki kost á að njóta útiveru á mismunandi tímum dags.
Herbergjaskipan og bílskúr: Fimm svefnherbergi eru í húsinu. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á neðri hæð. Hjónasvíta er á efri hæð. Tvö önnur svefnherbergi eru á efri hæð þar sem hluta stofunnar hefur verið lokað af með léttum veggjum til að útbúa herbergi. Gert hefur verið ráð fyrir raflögnum í veggjunum, en eftir er að draga í þá. Í bílskúrnum hefur jafnframt verið stúkað af herbergi með opnanlegum glugga.
Það rými er merkt geymsla á teikningum og er til viðbótar við svefnherbergin fimm. Skipulag hússins er því að hluta frábrugðið upprunalegum teikningum.
Svalir og pallsvæði: Útiaðstaðan er einn af helstu kostum hússins.
Pallasvæðið er 142 fm og býður upp á gott pláss fyrir útiborð, setuaðstöðu og samveru fjölskyldu og vina. Pallurinn framan við húsið nýtur morgun- og hádegissólar, en pallurinn að aftan er skjólgóður og nýtur hádegis- og síðdegissólar.
Svalir eru bæði framan og aftan við húsið; svalirnar að framan njóta morgunsólar en svalirnar að aftan kvöldsólar.
Heitur pottur og útieldhús: Á pallinum er
heitur pottur með Wi-Fi-stýringu og stillanlegri litlýsingu. Hægt er að stjórna pottinum úr síma. Undir svölunum að aftan hefur verið gert ráð fyrir
útieldhúsi, með rennandi vatni og raflögnum fyrir lýsingu og innstungu. Jafnframt hefur verið lagt fyrir þriggja fasa rafmagni að pottasvæðinu með mögulega uppsetningu á
Sauna í huga.
Garður og gróðurhús: Bakgarðurinn var endurgerður sumarið 2025. Við uppsetningu gróðurhúss var skipt um jarðveg undir því og steypt gólfplata.
Gróðurhúsið er með flísalögðu gólfi og rafmagni fyrir lýsingu og hitara. Upphækkuð gróðurbeð afmarka hluta garðsins og í þeim er lýsing sem hægt er að breyta úr síma.
Útilýsing er sjálfstýrð og stór hluti innilýsingar er einnig með snjallperum.
Aðkoma: Fyrir framan húsið er bílaplan með rými fyrir
fjóra bíla. Þar hefur einnig verið útbúin aðstaða fyrir þrjár sorptunnur og lagt fyrir lýsingu og innstungu.
Hér er um að ræða rúmgott fjölskylduheimili með
fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og aukarými í bílskúr. Stórt pallsvæði, tvennar svalir, heitur pottur og gróðurhús skapa góða umgjörð um fjölskyldulíf og samveru.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.