Virkilega huggulegt sumarhús umvafið gróðri, sannkallaður sælureitur.Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Selásar 19, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign með fastanúmer 223-9410 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum.
Samkvæmt HMS er birt stærð 41.5 fm.Lýsing eignar:Fallegt sumarhús á 3600fm eignarlóð í einstaklega fallegu umhverfi í rótgrónu sumarhúsahverfi. Húsið er næst ysta húsið í botnlanga, virkilega fallegt stæði. Aðalhús er 29fm og er vel skipulagt og nýtast fermetrarnir vel, en það skiptist í eldhús og alrými, baðherbergi með sturtu, salerni og vaski. Einnig er eitt svefnherbergi og svefnloft er yfir hluta húsins (sem er ekki inní fermetratölu). Gistiskála (skráður sem geymsla) er um 12fm og er notað sem rúmt svefnherbergi. Óskráðir eru tveir geymsluskúrar, og gróðurhús aftan við húsið.(s.s. ekki inní fermetratölu).
Stofa/eldhús - Gengið er inn frá gafli í opið rými sem samanstendur af stofu og eldhúsi. Þar er parket á gólfi og smekkleg eldhúsinnrétting með eldavél með ofni og ískápur.
Svefnherbergi - Innst í húsinu er svefnherbergi með parketi á gólfi, opnanlegum glugga.
Baðherbergi - Við hlið svefnherbergisins er baðherbergi með sturtuklefa, lítilli innréttingu með handlaug og salerni.
Svefnloft - Í miðju hússins er stigi upp á svefnloft sem er undir súð m. 1,4m² lofthæð upp í mæni. Svefnloftið er ekki skráð í fermetratölu. Stiginn leggst upp að vegg þegar hann er ekki í notkun og fer því lítið fyrir honum. Opið er yfir í stofu/eldhús skorðað af með rimlahandriði. Opnanlegur gluggi er í rýminu og spónarplötur á gólfi.
Svefnskáli - Við hlið hússins, bakatil, er skáli sem nýtist í dag sem svefnrými, en er skráður sem geymsla. Skálinn er 12m². Parket á gólfi, gluggar í allar áttir. Gengið er inn í skálann frá palli.
Geymsluskúrar- Við hlið svefnskálans er geymsluskúr, og annar fyrir aftan sem er ekki skráðir.
Garðhús - snyrtilegt gróðurhús er svo beint fyrir aftan geymsluskúranna, þarna er hægt að rækta matjurtir.
Það er hitaveita og símahlið til að komast inná svæðið. Stutt er í verslun, Baulu og Borgarnes ekki langt frá, þar sem hægt er að fara í sund, golf og fleira. Einnig eru náttúruperlur skammt frá á borð við Glanna í Norðurá og Grábrók.
Nánari upplýsingar veita:Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.