Fasteignaleitin
Skráð 29. mars 2025
Deila eign
Deila

Suðurgata 27

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
227.8 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
790.167 kr./m2
Fasteignamat
124.500.000 kr.
Brunabótamat
93.000.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Byggt 1927
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2079710
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Allar vatnsl innan íbúðar endurnýjaðar.
Raflagnir
Rafm var endnýj að hluta.
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar.
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
. Skipt um allar þakrennur og einhverjar þakplötur
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Suðurgata 27, 220 Hafnarfjörður fastanúmer 2079710.

Eitt fallegasta hús Hafnarfjarðar er komið til sölumeðferðar hjá okkur á Prima Fasteignasölu
Mikið endurnýjað 227 fm einbýli á tveimur hæðum með kjallara við Suðurgötu 27 í Hafnarfirði. Þetta er ein af fallegri eldri eignum í gamla bænum og setur þetta fallega hús mikin svip á götuna. Húsið er byggt 1920 en hefur verið mikið endurnýjað og fengið mjög gott viðhald síðustu tvo áratugi.
Það er stutt ganga í miðbæinn og aðra skemmtilega menningu í hjarta Hafnarfjarðar.  

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Þór Rúnarsson lgf á bjorgvin@primafasteignir.is eða í síma 855-1544 

Nánari lýsing á neðri hæð:
Forstofa:  Opin forstofa með rúmgóðum, háum skápum. Flísar á gólfi.
Eldhús: Staðsett í viðbyggingu byggð árið 2007. Vel skipulagt með góðu skápaplássi, gert ráð fyrir stórum ísskáp, gaseldavél, gufugleypir, flísar á gólfi, innfelld lýsing í lofti, útgengt út á sólpall með heitum potti.
Borðstofa: Opið rými sem tengir saman stofu og eldhús. Gegnheilt viðargólf. Gengið niður í kjallara úr borðstofu úr rennihurð.
Stofa: Hlýleg, opin og björt með innfelldri lýsingu, góðri lofthæð, gegnheilt parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Gott pláss fyrir góðan fjölskyldusófa, innfelld lýsing, gegnheilt viðargólf.
Sólpallur: Stór og góður sólpallur með heitum potti.

Nánari lýsing á efri hæð:
Hjónaherbergi: Gott og bjart herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi III: Þetta herbergi er nýtt sem fataherbergi í dag. Gegnheilt viðargólf.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað baðherbergi, upphengt salerni, náttúrusteinn í borði og vask, opin sturta, handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.

Framkvæmdir og viðhald eignarinnar síðustu ár að sögn seljanda:
2003 - Húsið er tekið í gegn af núverandi eigendum og í raun gert fokhelt. Skipt um allar lagnir, raflagnir, glugga.
2007 - Byggð viðbygging fyrir eldhús, garður tekin upp og skipt um jarðveg, allar lagnir út í götu nýjar, nýtt dren, hiti í gagnstétt og bílastæði og byggður sólpallur.
2022 - Baðherbergi á efri hæð uppfært og breytt, eldhús uppfært og breytt. Skipt um allar þakrennur og einhverjar þakplötur
2024 - Ný svalahurð

Nánari lýsing á kjallara:
Þvottahús: Gengið niður úr borðstofu í þvottahúsið en þarna er minni lofthæð en innar í rýminu. Steypt gólf.
Anddyri kjallari: Útgangur úr kjallara, góðir hvítir skápar, flísar á gólfi.
Gufa/baðherbergi: Gengið er eitt þrep niður og þá eykst lofthæðin í þessu rými. Þarna má finna sturtu, upphengt salerni og saunu með setrými fyrir framan. Flísar á gólfi.

Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
GötuheitiPóstnr.m2Verð
220
227.8
180
221
264.5
169,9

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 27
3D Sýn
Opið hús:04. apríl kl 17:00-18:00
Skoða eignina Suðurgata 27
Suðurgata 27
220 Hafnarfjörður
227.8 m2
Einbýlishús
714
790 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 49
Bílskúr
Skoða eignina Drekavellir 49
Drekavellir 49
221 Hafnarfjörður
264.5 m2
Einbýlishús
75
642 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin