***EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI***- NÝTT, FULLBÚIÐ OG ÓVENJU GLÆSILEGT HÚS, TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
- FRÁBÆRT SKIPULAG - HJÓNASVÍTA MEÐ SÉR BAÐHERBERGI OG FATAHERBERGI
- SÉRLEGA MIKIÐ LAGT Í ÞESSA EIGN OG VANDLEGA HUGAÐ AÐ HVERJU SMÁATRIÐI
Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninni
Gimli fasteignasala kynnir: Vandað og fallegt endaraðhús á einni hæð með bílskúr. Húsið sem er 4 herbergja með tveimur baðherbergjum er í heildina skráð 174,1 fm þar af er innangengur bílskúr 34 fm. Eignin skiptist í forstofu, rúmgóðan gang, alrými: eldhús/borðsstofu/stofu með útgengi í garð um stóra rennihurð, hjónasvítu með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi í garð, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Góð lofthæð (280 cm), gólfhiti og sérlega vandaðir gluggar og hurðir. Allar innréttingar og fataskápar eru frá Voke3. Staðsetningin er afar góð, innst í botnlanga með baklóð í hásuður og í örstuttri göngufjarlægð frá Stekkjaskóla sem er nýr og glæsilegur grunnskóli í hjarta hverfisins. Húsið er nánast tilbúið til afhendingar og verður afhent fullbúið að innan sem utan (bst.7) ásamt steyptri stétt við anddyri. Nánari upplýsingar veitir Lilja Hrafnberg, Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, s. 820 6511, lilja@gimli.is milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga.NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Björt og rúmgóð með fataskáp. Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit. Ljósar flísar á gólfi.
Alrými; eldhús/stofa/borðstofa: Eldhúsinnrétting sem nær yfir heilan vegg og stór eldunareyja með span helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél og blástursofn í vinnuhæð. Allt rýmið er mjög bjart og rúmgott með góðri lofthæð (280 cm). Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit. Fallegt harðparket á gólfi. Útgengi um rennihurð út í garð að aftanverðu þar sem búið er að leggja fyrir heitum potti.
Hjónasvíta: Glæsileg með sér baðherbergi og fataherbergi:
Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir, "walk in" sturta, afmörkuð með dökku glerþili og með vönduðum svörtum tækjum. Baðinnrétting með vaski, speglaskápur með lýsingu, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Fataherbergi með opnum skápum.Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit. Fallegt harðparket á gólfi . Útgengi í garð að sunnanverðu.
Svefnherbergi #2: Rúmgott herbergi, fataskápar með innbyggðri lýsingu. Fallegt harðparket á gólfu. Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit.
Svefnherbergi #3: Rúmgott herbergi, fataskápar með innbyggðri lýsingu. Fallegt harðparket á gólfu. Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit.
Baðherbergi #2: er flísalagt bæði gólf og veggir, "walk in" sturta, afmörkuð með dökku glerþili og með vönduðum svörtum tækjum. Baðinnrétting með vaski, speglaskápur með lýsingu, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Innrétting með vaski og góðu skápaplássi, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Veggir málaðir í hlýjum ljósgráum lit. Ljósar flísar á gólfi.
Bílskúr: Innangengur úr þvottahúsi, flísar á gólfi.
Risloft: er yfir öllu húsinu, aðgengi frá bílskúr.
Lóð: Gröfjöfnuð. Búið að leggja fyrir heitum potti. Steypt stétt við anddyri. Steypt ruslatunnuskýli fyrir þrjár tunnur.
NÁNARI SKILALÝSING:Burðarvirki: Húsið er timburhús og er klætt með ljós gráum flísum. Öndunardúkur utan á húsi sem hlífir krossviði. Ál leiðara klæðning og flísar ysta klæðning.
Gólfefni: Eignin er afhent með gólfefnum, votrými og forstofa flísalögð, flísar á bílskúr og fallegt harðparket á öðrum rýmum.
Gluggar og hurðir: allir gluggar eru frá Idealcombi úr áli/timbri, vandaðir gluggar í dökk gráum lit Ral 7022 að utan og hvítir að innan. Gler er tvöfalt k-einangrunargler. Útihurðin er extra há 250cm.
Bílskúr: Bílskúrshurð er frá Glófaxa Hörmann í sama lit og gluggar Ral 7022. Extra breið 350 cm og extra há 250 cm. Hermann bilskúrshurða opnarar í skúr. Flísar á gólfi með niðurfalli við hurð. Allir veggir og loft eru klæddir með tvöföldu lagi af gipsi. Búið er að ganga frá rafmagnstöflu og hitaveitugrind er frágengin.
Innveggir: Innveggir eru klæddir beggja megin með tvöföldu gipsi og einangraðir. Þar sem innréttingar koma upp er á flestum stöðum spónaplötur eða krossviður undir festi punktum.
Baðherbergi: er flísalagt bæði gólf og veggir, "walk in" sturta, afmörkuð með dökku glerþili og með vönduðum svörtum tækjum. Baðinnrétting með vaski, speglaskápur með lýsingu, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Pípulagnir: Neysluvatnið er rör í rör, þrýstiprófað. Gólfhitalagnir eru í öllu húsinu og bílskúr.
Lýsing: Innfelld hvít led ljós í loftum.
Rafmagns- og sjónvarpslagnir: Rafmagnsefni, tenglar og rofar frá Rönning.
Baklóðin snýr í hásuður og þar er ídráttarrör fyrir heitan pott.
Lóðin er grófjöfnuð, búið er að jarðvegskipta. Steypt stétt við anddyri.
Við afhendingu fylgir húsbók með tæknilegum upplýsingum, tengiliðum og praktískum atriðum.Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt.GLÆSILEG EIGN SEM UPPFYLLIR RÚMLEGA ÞARFIR NÚTÍMAFJÖLSKYLDU HVAÐ VARÐAR ÚTLIT, SKIPULAG, STAÐSETNINGU OG ÞÆGINDI. Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust.
Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.