Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Eyjatún 17

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
63 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
839.683 kr./m2
Brunabótamat
36.700.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
233185732
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

VANDAÐ SUMARHÚS VIÐ MEÐALFELLSVATN 
Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu glæsilegt sumarhús á 2.488 fm leigulóð nánar tiltekið Eyjatún 17, í landi Eyja 1 við Meðalfellsvatn í Kjós. Húsið stendur á steyptri botnplötu og er 63 fm að stærð á einni hæð byggt árið 2017 en tekið í notkun 2019. Húsið er einstaklega bjart, aukin lofthæð og stórir gluggar með fallegu útsýni og telur anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Lokað gólfhitakerfi er í húsinu.  Glæsileg rúmgóð timburverönd, úti saunaklefi úr CEDRUS við og heitur pottur. Auk þess er á lóðinni 15 fm geymsla sem er ekki inn í fermetrafjölda eignarinnar. Þar er búið að einangra gólfið, leggja inn rafmagn og hitaveiturör og mætti því auðveldlega breyta henni í gestahús. Samkvæmt skipulagi þá væri möguleiki að stækka sumarhúsið um 57 fm innan byggingarreits.

  
*** BÓKIÐ SKOÐUN HÉR ***

Nánari lýsing:

Húsið er klætt að utan með bandsöguðu greni frá SUPERWOOD í Danmörku. Klæðningin er þrýstifúgavarinn, þakkantur er álklæddur. Gluggar og hurðir eru ál-tré frá VELFAC í Danmörku. Húsið er á einni hæð með upptekin loft og er klætt að innan bæði með hvíttuðum veggpanel og hvítmáluðum gipsveggjum. Ljóst harðpartket er á gólfum og hvítmálaðar hurðar.
Alrými/stofa: bjart og fallegt með aukinni lofthæð, stórum gluggum og fallegu útsýni.
Eldhús:  er í björtu alrými, falleg hvít innrétting frá Ikea með miklu skápaplássi, uppþvottavél og góðri vinnuaðstöðu. Útgengi úr alrými út á glæsilega timburverönd.
Baðherbergi:  er flísalagt, rúmgott og glæsilegt, vegg hengt WC, vaskur í innréttingu, handklæðaofn, walk inn sturta og þvottavél.
Svefnherbergi: þrjú svefnherbergi eru í húsinu.
Lóðin: góð aðkoma er að húsinu og reglubundinn snjómokstur yfir vetrarmánuðina þegar þörf er á. Lóðin er endalóð og er vel tilhöfð með góðum grasbletti og búið að girða hana.
Innbú: Öll húsgögn fylgja með, ískápur, þvottavél og uppþvottavél. 
Husqvarna slátturtraktor fylgir með.


Hér er um að ræða glæsilegt viðhaldslítið sumarhús á fallegum og eftirsóttum stað þar sem fjölbreytt aðstaða er til útivistar allt árið um kring í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ. 

Gjöld: 
Fasteignagjöld 2026 eru 180.760
Brunatrygging 2026 er 45.310 
Lóðarleiga 2026 er kr. 80.000
Árgjald í Félag sumarhúsaeigenda 2026 er kr. 20.000

Glæsileg eign sem vert er að skoða!

Til fróðleiks!
Meðalfellsvatn er fallegt stöðuvatn sem liggur við rætur Meðalfells og er áberandi í landslagi svæðisins. Vatnið er umlukið fjöllum og grónu landi og nýtur mikilla vinsælda meðal útivistarfólks.
Meðalfellsvatn er talið vera um 3–4 ferkílómetrar að stærð og er meðalstórt stöðuvatn á íslenskan mælikvarða. Dýpt vatnsins er mismunandi, en talið er að það nái yfir 20 metra dýpi á dýpstu stöðum.
Í vatninu er fiskur, einkum bleikja og urriði, og hefur Meðalfellsvatn lengi verið þekktur veiðistaður. Veiði er stunduð með leyfi og er vatnið vinsælt meðal stangveiðimanna.
Umhverfi Meðalfellsvatns hentar vel til gönguferða, útivistar og kyrrðar. Vatnið er góður staður til að njóta náttúrunnar, hvort sem er við veiði, göngu eða einfaldlega til að njóta útsýnis og rólegrar stemningar.


Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali sími 898-2017 netfang  as@heimili.is





 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Beykiskógar 19
Skoða eignina Beykiskógar 19
Beykiskógar 19
300 Akranes
73.5 m2
Fjölbýlishús
312
815 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsendahlíð 98
Vatnsendahlíð 98
311 Borgarnes
61.1 m2
Sumarhús
412
571 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Stóraborg 13
Skoða eignina Stóraborg 13
Stóraborg 13
311 Borgarnes
83.8 m2
Sumarhús
211
715 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin