Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

Strikið 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
111.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
931.004 kr./m2
Brunabótamat
67.810.000 kr.
Byggt 2006
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22735291
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í Sjálandshverfi í Garðabæ í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri sem vert er að skoða. íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, samliggjandi stofu og borðstofu, sérþvottahúsi og suðursvölum með glerlokun. Eigninni fylgja sérgeymsla og stæði í bílageymslu. Hlýlegar viðarinnréttingar og stórir gluggar setja svip á íbúðina og opin tenging eldhúss og stofurýmis skapar skemmtilega heild.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð eignarinnar 111,6 m². Þar af er íbúð 106,8 m² og sérgeymsla 4,8 m². Svalir eru skráðar 7,7 m² og eru ekki hluti af birtri stærð. Húsvörður er í húsinu.  Húsið er steinsteypt og byggt árið 2006 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Samkomusalur í eigu húsfélagsins er í húsinu sem eigendur geta nýtt.


Nánari lýsing:
Forstofa og hol: Komið er inn í hol með góðum fataskápum.Þaðan er aðgengi að herbergjum og sameiginlegum íverurýmum íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Opið að borðstofu og stofu. Viðarinnrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. Helluborð og háfur yfir því. Lág skilveggseining afmarkar eldhúsið gagnvart borðstofurými og stofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með stórum glugga, fataskápum í viðarlit og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Með glugga og parketi á gólfi. Rýmið getur einnig nýst sem vinnuherbergi eða gestaherbergi.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug og spegli. Flísar á gólfi og veggjum.Sturtuklefi og handklæðaofn.
Geymsla / vinnuherbergi: Gluggalaus.  Innan íbúðar, með parketi á gólfi. Nýtist vel sem skrifstofa, tómstundaherbergi eða aukaherbergi.
Þvottahús: Sérstakt þvottarými inn af eldhúsi með skápum, vinnuborði og vaski. 
Svalir: Gengið er úr stofu út á svalir með glerlokun sem veitir skjól og eykur notagildi þeirra. Svalir eru skráðar 7,7 m² hjá HMS. 
Geymsla og bílastæði.  Sérgeymsla í kjallara er skráð 4,8 m². Eigninni fylgir stæði í bílageymslu þar sem búið er að gera ráð fyrir rafhleðslustöð.
Sameign: Einkar snyrtileg, vel við haldið og húsvörður er starfandi fyrir íbúa að Strikinu 2-12. Næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð.
Húsið og nærumhverfið: Strikið er í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Í næsta nágrenni er Jónshús við Strikið 6, þar sem Garðabær og Félag eldri borgara í Garðabæ standa fyrir félagsstarfi. Umhverfis húsið er falleg lóð sem hefur fengið viðurkenningu frá Garðabæ. Stutt er í alla þjónustu og fallegar gönguleiðir eru við sjávarsíðuna.

Allar upplýsingar veita  Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is og Ingimar Ingimarsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strikið 8
Bílastæði
Skoða eignina Strikið 8
Strikið 8
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarás 12C
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Arnarás 12C
Arnarás 12C
210 Garðabær
123,4 m2
Fjölbýlishús
312
882 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
Vorbraut14.jpg
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115,6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (201)
Vorbraut14.jpg
Vorbraut 14 (201)
210 Garðabær
128,8 m2
Fjölbýlishús
423
931 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin