BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ VÍÐI ARNARI S: 854 2226 EÐA VIDIR@DOMUSNOVA.IS
Domusnova og Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali kynna einstaklega fallegt, vandað og mikið endurnýjað einbýlishús í fúnkís stíl á eftirsóttum stað á Arnarnesi í Garðabæ.
Eignin stendur á stórri, gróinni 1.486 fermetra eignarlóð og einkennist af rúmgóðum og björtum vistarverum, vönduðum innréttingum og einstaklega fallegu útisvæði. Húsið býður meðal annars upp á rúmgóðar stofur, sex herbergi, þrjú baðherbergi, stóran bílskúr og bílastæði fyrir allt að sex bifreiðar.
Á lóðinni er fallegur og gróðursæll garður, vandað gróðurhús og grillskýli. Við húsið er rúmgóð, flísalögð verönd með heitum potti og rafdrifinni markísu sem skapar skjólgott og notalegt útisvæði.
Arnarnes er eitt eftirsóttasta íbúðarhverfi Garðabæjar. Um er að ræða gróið, friðsælt og fjölskylduvænt hverfi sem einkennist af einbýlishúsum á rúmgóðum eignarlóðum. Rýmið milli húsa og gróðurinn gefa hverfinu sérstakt og rólegt yfirbragð.
Staðsetningin er einstaklega falleg og í nágrenninu eru skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir, meðal annars meðfram strandlengjunni.
HúsiðÞað er skráð samtals 312 fermetrar, þar af er innbyggður bílskúr 49,2 fermetrar.
Húsið var hannað af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkitekt í klassískum og tímalausum stíl. Meðal þekktari verka hans, ýmist sjálfstætt eða í samstarfi við aðra arkitekta, eru Háskólabíó, mannvirki við Búrfells- og Sigölduvirkjanir, Breiðholtskirkja, Kuðungurinn við Ægisíðu, Esso-húsið við Suðurlandsbraut og ýmis vönduð einbýlishús.
Efri hæðin hússins er 194,9 fermetrar og einkennist af rúmgóðum, björtum og opnum rýmum. Stórir, gólfsíðir gluggar í stofu og borðstofu hleypa mikilli birtu inn og skapa fallegt samspil milli húss og garðs. Á hæðinni eru sérsmíðaðar innréttingar, eikarparket og gólfhiti að hluta.
Neðri hæðin er skráð 67,9 fermetrar. Innangengt er á hæðina frá efri hæð hússins en auk þess er þar sérinngangur. Rýmið býður því upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og mögulegt getur verið að útbúa þar sjálfstæða aukaíbúð, að fengnum tilskildum leyfum.
Bílskúrinn er 49,2 fermetrar og með tveimur innkeyrsluhurðum.
Til viðbótar við skráða fermetra hússins eru um 127 fermetrar óskráðir. Þeir eru í dag nýttir sem rúmgott tómstundarými og geymslur. Kaupendum er bent á að kynna sér sérstaklega skráningu, samþykktir og heimildir vegna hinna óskráðu rýma.
Helstu endurbætur2025 – Fráveitulagnir voru hreinsaðar og fóðraðar með Oliner-kerfi í október 2025.
2023 – Þakpappi var endurnýjaður með Sika/Sarnafil þakkerfi í júní 2023. Tíu ára ábyrgð er á vinnu og efni.
2014 – Gólf á neðri hæð var steypt og þar lagður gólfhiti. Drenlagnir voru endurnýjaðar, útveggir einangraðir og lagður dúkur að þeim. Jafnframt var skipt um jarðveg meðfram húsinu og nýjar tröppur byggðar niður að neðri hæð.
Lýsing eignar:
Efri hæð:Forstofa: Flísalagt gólf, sérhannað fatahengi.
Stofa: Mjög rúmgóð og björt, stórir gólfsíðir tekk gluggar, gluggar á þrjá vegu. Fallegar viðarþiljur í lofti. Gegnheilt eikarparket á gólfi.
Borðstofa: Í opnu rými með eldhúsi,mjög rúmgóð með gólfsíðum gluggum og rennihurð út á verönd og í garð. Viðarþiljur í lofti. Flísar á gólfi.
Eldhús: Falleg og vel skipulögð innrétting, granít borðplötur, niðurfelldur vaskur, span helluborð, vifta fyrir ofan helluborð. Góður borðkrókur með fallegu kaffi horni. Viðarþiljur í lofti með þakgluggum sem gefa skemmtilega birtu inn í rýmið. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðu skápaplássi, innangengt á baðherbergi, tvöföld hurð út á lóð. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting með efri og neðri skápum, sturta, baðkar, upphengt salerni, flísalagt gólf og veggir að hluta. Þakgluggi sem veitir skemmilega birtu.
Herbergi 2: Mjög rúmgott sem auðvelt væri að breyta í tvö herbergi.
Herbergi 3: Parket á gólfi.
Hol og gangur: Rúmgott og bjart rými,
Fallegar viðarplötur í lofti. Parket á gólfi.
Gesta baðherbergi: Innrétting undir vaski, upphengt salerni, flísalagt gólf og veggir að hluta.
Bílskúr: Mjög rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum. Hitalögn í plani, pláss fyrir 6 bíla á bílaplani. Epoxy á gólfi, tengi fyrir rafhleðslu, heitt og kalt vatn.
Neðri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataslá.
Baðherbergi: Innrétting undir vaski, sturta, upphengt salerni. Flísalagt gólf og veggir.
Stofa: Rúmgóð með tveimur gluggum yfir heilan vegg. Parket á gólfi.
Herbergi: Mjög rúmgott með þremur gluggum yfir heilan vegg, parket á gólfi.
Herbergi: Minna með parketi
Fataherbergi: Með glugga, skápar á tveimur veggjum.
Geymsla: Með glugga, málað gólf.
Gangur: Rúmgóður gangur. Parket á gólfi.
Óskráð rými: Kjallaragólf steypt í og lagður gólfhiti, dren og einangrun/dúkur útveggja og skipt um jarðveg meðfram húsinu, nýjar kjallaratröppur árið 2014. Í dag er þessi hluti hússins nýttur sem tómstundarými og geymslur. Mismikil lotfhæð er í rýminu, hæsta lofthæð rýmis er 233 sm. Miklir möguleikar á ýmsum notkunar möguleikum.
Nánari upplýsingar veitir:Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.854 2226 / vidir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.