Skráð 12. feb. 2026

Breiðavík

Atvinnuhúsn.Vestfirðir/Patreksfjörður-451
198,050.9 m2
Verð
790.000.000 kr.
Fermetraverð
3.989 kr./m2
Fasteignamat
931.000 kr.
Brunabótamat
33.400.000 kr.
Mynd af Svavar Friðriksson
Svavar Friðriksson
Löggiltur fasteignasali.
Fasteignanúmer
2123239
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: ***EINSTAKT TÆKIFÆRI - MIKLIR MÖGULEIKAR*** 
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS.

Breiðavík – hótelrekstur í Vesturbyggð.

Til sölu er rekstrareign í ferðaþjónustu á Breiðavík í Vesturbyggð. Um er að ræða hótel í virkri starfsemi sem afhent er með tilheyrandi mannvirkjum, innanstokksmunum og búnaði, ásamt umtalsverðu eignarlandi sem nemur um 12 hekturum. Eignin er staðsett í nálægð við eina helstu náttúruperlu Vestfjarða, Látrabjarg, sem er í um 14 km fjarlægð og þekkt fyrir ríkt fuglalíf og stórbrotið landslag. Til skoðunar er einnig kaup á jörðinni Breiðavík samhliða hótelrekstrinum.

Samkvæmt fasteignaskrá samanstendur eignin af fjölbreyttum byggingum, bæði eldri mannvirkjum og nýrri einingum sem risið hafa á undanförnum árum. Þar má m.a. finna gistirými af mismunandi gerðum, matsal, þjónusturými, íbúðarhúsnæði, geymslur og önnur stoðhús sem styðja við reksturinn. Auk þessa eru á lóðinni starfsmannaaðstaða og sumarhús sem nýtt eru til búsetu starfsfólks, en það kemur ekki fram í grunnskráningu en bætir verulega við heildarnýtingu eignarinnar.

Skráðar byggingar (samkvæmt Fasteignaskrá)
  • Gistiaðstaða og þjónusturými
  • Gistiheimili, byggt 1952 – 736,4 fm
  • Gistihús, byggt 2004 – 441,3 fm
  • Matsalur, byggður 2014 – 289,2 fm
  • Matsalur, byggður 2013 – 104,9 fm
  • Þjónustuhús, byggt 2017 – 55,8 fm
  • Íbúð, byggð 1952 – 72,0 fm
  • Geymslur og eldri stoðbyggingar
  • Véla- og verkfærageymsla, byggð 1963 – 78,9 fm
  • Fjós, byggt 1960 – 185,2 fm
  • Hlaða, byggð 1957 – 118,4 fm
  • Votheysgryfja, byggð 1957 – 31,5 fm
  • Fjárhús, byggt 1964 – 135,0 fm
  • Hjallur, byggður 1955 – 41,3 fm
  • Refahús, byggt 1985 – 778,2 fm
Auk framangreindra bygginga er starfsmannaaðstaða í viðbyggingu við véla- og verkfærageymslu ásamt sumarhúsi sem nýtt er fyrir starfsfólk. Sú aðstaða er talin vera samtals um 231 fm og er ekki inni í ofangreindri skráningu.

Á undanförnum árum hefur verið lagt verulegt fjármagn og vinna í viðhald og endurbætur, einkum frá árinu 2017. Þar má nefna endurnýjun fráveitukerfa og uppsetningu nýrra rotþróa, umfangsmiklar rafmagnsframkvæmdir með nýjum töflum, endurnýjaðar vatnslagnir og nýja glugga í elstu byggingum. Heildarástand mannvirkja telst gott og aðstaða vel hönnuð með tilliti til bæði gesta og starfsfólks.

Gistirými hótelsins eru fjölbreytt, með herbergjum bæði með og án sérbaðs, auk svefnpokaplássa. Matsalaðstaða er rúmgóð og tekur á móti stórum hópum, ásamt móttökurými, bar og sérsal sem nýtist til funda og viðburða. Eldhúsaðstaða er vönduð, með iðnaðareldhúsi og tengdum geymslum, auk sérstakrar bakstursaðstöðu sem áður var sjálfstætt eldhús.
Starfsmannaaðstaða er vel leyst, bæði í sérbyggðum rýmum og í sumarhúsi á lóð. Íbúð er til staðar í eldri hluta gistiaðstöðunnar og önnur íbúð hefur verið útbúin í endurbyggðu fjósi, sem nú er tilbúið til lokaútfærslu innanhúss.
Á svæðinu er einnig tjaldsvæði með eldhúsi, matsal, salernum og sturtuaðstöðu, auk rafmagnstenginga fyrir húsbíla. Ýmis eldri útihús hafa verið aðlöguð að nýrri notkun, svo sem verkstæði, geymslur og tæknirými. Varaaflsstöð er til staðar sem tryggir rekstraröryggi.
Vatnsöflun er tryggð með lindarvatni og borholu með sjálfvirkri dælingu og tilheyrandi starfsleyfi. Fyrirhugað er að tengja eignina við þriggja fasa veiturafmagn með jarðstreng og ljósleiðara á árinu 2025, sem mun styrkja innviði enn frekar.
Í heild sinni er hér um að ræða vel skipulagða og rótgróna ferðaþjónustueign á afar aðlaðandi stað, með sterka innviði, fjölbreytta nýtingarmöguleika og mikla framtíðarmöguleika fyrir áframhaldandi uppbyggingu.
Viltu frítt og skuldbindingarlaust verðmat á þína fasteign? Hafðu þá samband í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á svavar@fstorg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/01/2023103.572.000 kr.92.967.000 kr.3151.3 m229.501 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
19,800 m2
Fasteignanúmer
2123239
Húsmat
1.840.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.840.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2017
5.1 m2
Fasteignanúmer
2123239
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
17.450.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
17.450.000 kr.
Brunabótamat
33.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin