Lind fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali (elias@fastlind.is sími 777-5454), kynna : fallega 65,8 fermetra (61,8 fm. + 4,0 fm. geymsla ) 3ja. herb. íbúð á 2. hæð. í góðu steinsteyptu húsi byggt 1950. Algjörlega frábær staðsetning fyrir fólk sem vill búa í miðbæ Reykjavíkur. Rólegt umhverfi en stutt í miðbæinn og allt það sem hann hefur upp á að bjóða. Góðar suður svalir og mikið búið að endurnýja á síðastliðnum árum. Nýtt eldhús og rafmagnstæki og nýtt parket.
Fasteignamat fyrir árið 2026. 59.350.000. Meðal annars er búið að endurnýja :- 2012 var rafmagnstafla hússins endurnýjuð og raflagnir í sameign
- 2014 skólplagnir fóðraðar
- 2015 gluggar og tréverk málað
- 2016 dyrasímakerfi endurnýjað
- 2017 Múrviðgerðir á framhlið hússins, loft í undirgangi endurbyggt og einangrað og eldvarnarhurðir settar upp frá íbúðum í stigahús
- 2019 neysluvatnslagnir í öllum íbúðum endurnýjaðar, lagnir í sameiginlegu þvottaherbergi yfirfarnar og sett upp vifta. Hús sprunguviðgert með inndælingu.
- 2020 þakpappi og þakjárn á kvistum rishæðar endurnýjað og settar upp nýjar þakrennur og niðurföll. Gluggar í risíbúðum endurnýjaðir og gler.
- 2021 frárennslislagnir frá húsi út að götulögn fóðraðar af Veitum og steyptur pallur undir þvottavélar í þvottaherbergi.
Eignin skiptist : forstofa/anddyri, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofa.
Nánari lýsing :
Forstofa/anddyri : parketlagt.
Eldhús : parketlagt, falleg ný innrétting og rafmagnstæki ( span helluborð, blástursofn, uppþvottavél, ískápur og fristir. )
Baðherbergi : flísalagt að hluta og málað, góður sturtuklefi og handlaug.
Svefnherbergi l : parketlagt
Svefnherbergi ll : parketlagt.
Stofa : parketlögð með útgang út á góðar suður svalir.
Sameign : snyrtileg með þvottahúsi (hver með sýna þvottavél). Sér geymsla í sameign.
Hús að utan : lítur vel út, búið að endurnýja mikið. Sjá lýsingu eignar.
Lóð : suður lóð en mjög lítil.