Einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Fagraþing 6 í Kópavogi* 4 Svefnherbergi
* Hjónasvíta með sér fataherbergi og sér baðherbergi
* Einbýlishús á einni hæð
* Útsýni til fjalla
* Gólfhiti
Birt stærð samkv. HMS er 217,5 fm, þar af bílskúr 49,8 fm.
Nánari upplýsingar veitir
Páll Pálsson lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Góð ráð fyrir kaupendurVerdmat.is Gott alrými með stórri stofu, endurnýjað gólfefni 2025, eldhúsi og borðstofu, hjónasvíta með tveimur fataherbergjum og stóru baðherbergi og tvö mjög rúmgóð barnaherbergi. Tvöfaldur bílskúr og stórt upphitað bílaplan. Húsið stendur á hornlóð með miklu útsýni.
Forstofa: Parket á gólfi
Svefnherbergi / forstofuherbergi : Rúmgott og bjart forstofuherbergi með parket á gólfi.
Eldhús : Rúmgott, töluvert skápapláss og stór eyja
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi og gólfsíðir gluggar. Útgengi á hellulagða stétt og út á fallegan pall þar sem er einstaklega glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn og upp til fjalla.
Hjónasvíta: Mjög rúmgott og bjart, parket á gólfi, tvö fataherbergi og stórt baðherbergi inn af herberginu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Mjög rúmgott, hvít innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og veggjum, sturta, handklæðaofn, upphengt salerni. Opnanlegur gluggi.
Barnaherbergi II: Mjög rúmgott með parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, opnanlegur gluggi. Hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni,sturtuklefi og sturta.
Herbergi í bílskúr: Búið er að stúka hluta af bílskúrnum sem herbergi með tveimur góðum gluggum, auðvelt að breyta til baka.
Tvöfaldur bílskúr: epoxy á gólfi. Stórir fataskápar, tvær bílskúrhurðir með rafmagnsopnun. Innangengt er í bílskúr en að auki er hurð úr bílskúr út í garð.
Garðurinn er stór með hellulagðri stétt sem umlykur húsið og til hliðar við bílskúr er mjög stórt, upphitað bílaplan.
Fyrir framan húsið er hellulögð verönd með skjólveggjum og fyrir aftan húsið er nýlegur pallur með miklu útsýni.
Þak málað ágúst 2023 – 5 ára ábyrgð á málningu
Pallur og útigeymsla gerð 2021
2020 gert herbergi í hluta bílskúrs, auðvelt að breyta til baka.
Stutt er í alla helstu þjónustu ásamt fallegum gönguleiðum í kringum Elliðavatn, í verslun, skóla, leikskóla og Íþróttahöllina Kórinn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.