RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Einstaklega falleg efri hæð í tvíbýli með sér inngangi á frábærum stað í Hafnarfirði. Fallegt útsýni yfir hamarinn og til sjávar. Íbúðin sjálf er 4ra herbergja og í kjallara er einnig baðherbergi, þvottahús og bílskúr sem hefur verið breytt í svefnherbergi og geymslu. Innangengt er á milli hæða en einnig er sér inngangur inn í kjallara og væri möguleiki að útbúa sér íbúð þar. ***SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX******SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D***Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og teppalagður stigi upp á hæðina og einnig stigi niður í kjallara.
Miðrými/ hol með parket á gólfi og geymsluskáp/fataskáp.
Stofa og borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi og útgengi út á svalir, einstaklega fallegt útsýni.
Eldhús með parketflísum á gólfi, fallegri innréttingu og borðkrók.
Gólfhiti. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp
Tvö barnaherbergi með parket á gólfi og annað með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með "walk in" sturtu, fallegri innréttingu, handklæðaofn og upphengdu wc.
Gólfhiti.Innangengt úr forstofu í kjallara en einnig sér inngangur, gólfhiti er í kjallaranum.Rúmgott svefnherbergi með flísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með ljósri innréttingu og sturtu.
Rúmgott
þvottahús með
útgengi út í garðinn. Sér bílastæði fylgja eigninni, við bílskúr og einnig hjá inngangi íbúðar.
Snjóbræðsla er í öllu bílaplaninu.Eigendur hafa gert með sér samkomulag að skipta garðinum, búið að útbúa góðan pall. Frábær staðsetning, leikskóli, grunnskóli (Öldutúnsskóli), framhaldsskóli (Flensborg) og Suðurbæjarlaug í göngufæri og stutt í alla aðra þjónustu. Miðbærinn í göngufæri, verslanir, veitingastaðir, kaffihús, Bæjarbíó o.fl. Nánari upplýsingar gefur Sigíður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.