Fasteignaleitin
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skráð 26. ágúst 2026

Grenimelur 47

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
171.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
157.900.000 kr.
Fermetraverð
921.775 kr./m2
Fasteignamat
122.100.000 kr.
Brunabótamat
88.770.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1971
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2026180
Landnúmer
106047
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál (myndaðar um 2017)
Gluggar / Gler
Upprunalegir en stærsti hluti glerja endurnýjað
Þak
járn/þakklæðningu árið 2011
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Rætt hefur verið um viðgerðir/endurbætur á gluggum í húsfélaginu en engar ákvarðanir liggja fyrir.
Gallar
Skemmd í parketi fyrir framan forstofuskápa.
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Grenimel 47, 107 Reykjavík.
Einstaklega björt og rúmgóð 171,3 m², 4ra herbergja miðhæð með sérinngangi og bílskúr á einum eftirsóttasta stað Vesturbæjarins. Skráð stærð íbúðar og geymslu er samtals 148,5 m² og bílskúrinn er 22,8 m².
Eignin einkennist af stórum gluggum, fallegri birtu og afar rúmgóðum samliggjandi stofum þar sem setustofa og borðstofa tengjast á skemmtilegan hátt. Úr stofu er útgengt á stórar og skjólgóðar svalir.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í anddyri með fatahengi. Góðir forstofuskápar eru í holi inn af anddyri.
Stofa og borðstofa: Afar rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur með arni og stórum gluggum. Úr stofu er útgengt á stórar 10,6 m² svalir sem mynda skemmtilega framlengingu á alrými íbúðarinnar.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðri vinnu- og skápaaðstöðu. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi inn af. Á teikningu er fataherbergið skráð sem fjórða svefnherbergið.
Svefnherbergi II og III: Bæði herbergin eru rúmgóð og björt.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Baðherbergið var endurnýjað í heild árið 2020.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni, skráð 3 m², og er hún staðsett á jarðhæð.
Bílskúr: Eigninni fylgir 22,8 m² bílskúr.
Húsið var lagfært að utan og málað árið 2022. Skipt var um járn á þaki árið 2011 og gler hefur að mestu verið endurnýjað á undanförnum árum. Rafmagnslagnir voru endurnýjaðar árið 2007. Frárennslislagnir voru myndaðar árið 2017 og reyndust þá í góðu ástandi.

Grenimelur er einstaklega eftirsótt og fjölskylduvæn gata í hjarta Vesturbæjarins. Staðsetningin sameinar rólegt og gróið íbúðarhverfi og einstaka nálægð við alla helstu þjónustu. Melaskóli, Hagaskóli, leikskólar og Háskóli Íslands eru í næsta nágrenni ásamt Vesturbæjarlaug, KR-svæðinu, Melabúðinni og fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum. Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir við Ægisíðu og meðfram strandlengjunni. Þá eru miðborg Reykjavíkur, Landspítalinn og fjölbreytt menningar- og þjónustustarfsemi í þægilegu göngu- og hjólafæri.

Virkilega björt, rúmgóð og vel skipulögð eign með stórum gluggum, fallegum arni, rúmgóðum svölum og bílskúr á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002 og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda sem festur er á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1971
22.8 m2
Fasteignanúmer
2026180
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.470.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólabraut 3
Skoða eignina Skólabraut 3
Skólabraut 3
170 Seltjarnarnes
78 m2
Fjölbýlishús
211
871 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 83
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 15:00-15:20
Skoða eignina Kársnesbraut 83
Kársnesbraut 83
200 Kópavogur
177 m2
Hæð
524
650 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Frakkastígur 8
Bílastæði
Skoða eignina Frakkastígur 8
Frakkastígur 8
101 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
983 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurbraut 13
Skoða eignina Víkurbraut 13
Víkurbraut 13
230 Reykjanesbær
171 m2
Fjölbýlishús
414
339 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin