Fasteignaleitin
Skráð 8. júní 2026

Eirhöfði 7B íb.703

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
157 m2
4 Herb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
1.146.497 kr./m2
Fasteignamat
134.650.000 kr.
Brunabótamat
93.600.000 kr.
Byggt 2025
7. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534566
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
07
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna rúmgóða þakíbúð við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða.
Íbúð 703 er 4–5 herbergja þakíbúð á 7. hæð, samtals 190,7 m². Þar af er íbúðin 171,0 m² og sérgeymsla 19,7 m². Íbúðinni fylgir hvorki bílskúr né bílastæði. Kaupandi getur keypt bílskúr (-153) sérstaklega fyrir 25 milljónir króna og bílastæði í bílageymslu (B27) fyrir 7 milljónir króna. Kaupandi fær jafnframt endurgjaldslaus afnot af bílastæði í tvö ár eftir kaup.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, sjónvarpsstofu sem nýta má sem fjórða svefnherbergi, rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö baðherbergi og anddyri. Frá íbúðinni er gengið út á 56,1 m² þaksvalir með útsýni yfir borgina og nágrennið.
Stórir gluggafletir hleypa dagsbirtu inn í alrýmið, þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild. Eldhúsið er með eyju og góðu skápaplássi. Hjónaherbergið er um 14,2 m² og hin svefnherbergin um 7,4 m² og 9,7 m². Sjónvarpsstofan gefur möguleika á fjórða svefnherbergi.
Innréttingar eru í kasmírgráu litaþema frá Voké-III. Íbúðin er með quartz borðplötum, Miele heimilistækjum og GROHE blöndunartækjum. Baðherbergin eru flísalögð og í íbúðinni er vélræn loftræsting.

Eirhöfði 7 stendur á Hamrinum á Ártúnshöfða, með útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi svæði. Stutt er í útivist við Elliðaárdal, strandstíga og göngu- og hjólaleiðir. 

Kaupendum við Eirhöfða 7 býðst að kynna sér [UMBRA20 fjármögnunarleiðina, þar sem möguleiki er á kaupum með 10% útborgun, að uppfylltum skilyrðum.

Athugið að myndir í auglýsingu eru teknar í sýningaríbúð verkefnisins og sýna ekki íbúð 703.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lofnarbrunnur 26
Bílskúr
Opið hús:11. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Lofnarbrunnur 26
Lofnarbrunnur 26
113 Reykjavík
155 m2
Raðhús
312
832 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Álakvísl 61
Bílskúr
Skoða eignina Álakvísl 61
Álakvísl 61
110 Reykjavík
145,1 m2
Fjölbýlishús
523
654 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bílskúr
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bleikjukvísl 2
110 Reykjavík
420,9 m2
Fjölbýlishús
1035
520 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Skoða eignina Iðunnarbrunnur 12
Efsta hæð
Iðunnarbrunnur 12
113 Reykjavík
106,1 m2
Hæð
412
828 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin