Domusnova og Ingunn Björg kynna afar fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja, 101,2 fm íbúð með sérinngangi í fallegu þríbýlishúsi við Hraunteig 28. Um er að ræða góða eign í glæsilegu húsi á einum eftirsóttasta stað borgarinnar. Húsið var nýlega steinsallað að utan ( 2024), skipt var um járn og pappa á þaki ásamt þakrennrum ( 2007) , drenlögn kringum hús var endurnýjuð ( 2009), skólplagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar ( c.a 2001).
Snyrtileg lóð með hellulögðum stéttum með hitalögnum fyrir framan hús, rúmgóður gróðursæll garður með nýlegri timburverönd með skjólveggjum ásamt hellulagðri stétt í bakgarði.
Frábær staðsetning örstutt frá Laugardalslaug og World Class Laugum. Stutt er í fjölbreytta þjónustu við Laugalæk með verslun, bakarí, ísbúð, kaffihúsi og kjötmeistara. Skólar og leikskólar eru einnig í næsta nágrenni. Skipulag eignarinnar er eftirfarandi: Eldhús opin inn í stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús á hæð. Framkvæmdir innan íbúðar:- Eldhús endurnýjað - Innrétting , borðplötur og tæki
- Baðherbergi endurnýjað - Flísar, innrétting og tæki
- Gólfefni endurnýjuð
- Hurðar innan íbúðar endurnýjaðar - eldvarnarhurð úr íbúð í sameign
- Ný rafmagnstafla (2025)
- Pledge ljósastýring á flestum ljósum (2025)
- Gólfhiti - ný yfirfarið sett upp nýtt rafrænt stjórnkerfi frá Salus (2025)
- Allir gluggar endurnýjaðir fyrir utan á baðherbergi
- Í sameign - rafmagnsmælar í rafmagnstöflu endurnýjaðir
Nánri lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð sturta með glerhurð, innrétting undir vaski, upphengt salerni.
Eldhús: Falleg og vönduð eldhúsinnrétting með miklu skápa og vinnuplássi, steinborðplötur, Miele extra breitt spanhelluborð, tveir bakaraofnar, niðurfelldur vaskur. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, gluggar á tvo vegu, fataskápar, parket á gólfi.
Herbergi 2 : Rúmgott og bjart, fataskápar, parket á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni, hver íbúð með sér tengi fyrir sína vél.
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.