** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög glæsilegt 249,6 m2 einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað í rólegum botnlanga við Þrastarhöfða 28, rétt við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Gott skipulag og mjög mikil lofthæð,3,4 metrar í alrýmum og 2,85 metrar í herbergjum og bílskúr. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Húsið er klætt að utan með flísum og við. Glæsileg afgirt lóð með hellulögn og veröndum. Heitur pottur og stór geymsluskúr. Stórt hellulagt bílalstæði með snjóbræðslu. Eignin er skráð 249,6 m2, þar af einbýli 205,0 m2 og bílskúr 44,6 m2. Auk þess er kaldur geymsluskúr sem er ekki skráður í fermetratölu eignarinnar.Húsið skiptist í tvö barnaherbergi (þrjú á teikningu), hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, þvottahús, baðherbergi, bílskúr, forstofu, sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu.
Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöllinn, Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, Lágafellslaug og World Class. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með stórum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 1 er mjög rúmgott inn af forstofu með fataskáp. Er á upphaflegri teikningu tvö herbergi. Auðvelt er að breyta í tvö herbergi þar sem það eru tvær hurðar inn í herbergið.
Svefnherbergi nr. 2 (Hjónaherbergi) er rúmgott með útgengi út í bakgarð. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og baðherbergi með vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug, steinn á borði.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum.
Baðherbergi er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, baðkari, rúmgóðri sturtu með innbyggðum tækjum og stórri innréttingu, steinn á borði. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með rúmgott með innréttingu með miklu skápaplássi, þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn. Úr þvottahúsi er útgengt út í geymslu/garð.
Sjónvarpshol er rúmgott með innréttingu, steinn á borði.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og hljóðdempandi plötum með innbyggðri lýsingu til að bæta hljóðvist. Stórir gluggar og útgengi út á verönd í suðurátt.
Eldhús er með stórri innréttingu og eyju með miklu vinnu- og skápaplássi, steinn á borði. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, bökunarofn, örbylgjuofn, gashelluborð og háfur. Gert er ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi. Fataskápar og innrétting er í bílskúr.
Steinteppi er á gólfum nema á stofu þar er parket, á baðherbergjum og í bílskúr en þar eru flísar.
Verð. kr. 214.900.000,-