Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Fallegt 25 fm gestahús með snyrtilegri verönd á gróinni lóð á sumarhúsasvæði við Brókarvatn á Mýrum.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Nánari lýsing:
Húsið er útfært sem stúdíóíbúð, með sér baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Alrými með eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, eldavél og plássi fyrir lítinn ísskáp, pláss fyrir eldhúsborð og í stofu hægt að hafa svefnsófa. Húsið er einkar vel byggt og einangrað, kynnt með rafmagnsofnum og hitakút fyrir heitt vatn. Eigandi hafði fengið byggingarleyfi fyrir 85 fm húsi sem ekki hefur verið reist, en hugsanlega má fá byggingarleyfi endurvakið, kjósi nýr eigandi að fara í stækkun húsakosts. Húsið stendur á 2508 fm leigulóð með gildan leigusamning til 2030 en hægt er að fá nýjan leigusamning til 20 ára samhliða kaupum.
Einnig kemur til greina að kaupa lóðina af landeiganda og kostar hún þá til viðbótar xxxx
Helsti rekstrarkostnaður er:
Lóðarleiga ca. =
Fasteignagjöld ca. =
Brunatrygging ca. =
Sumarhúsafélag ca. =
Rafmagn ca. =
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.