Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2023
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
7 Herb.
4 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
86.200.000 kr.
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
70000008
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Stórar verandir með glæsilegu útsýni
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINSTÖK GOLFVILLA Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ*

Stórglæsilegt, rúmgott einbýlishús með einstöku útsýni á stórri lóð með einkasundlaug í fyrstu línu við hinn vinsæla Las Ramblas golfvöll, um 50 mín akstur suður af Alicante. Húsið er á þremur hæðum, og auk þess þakherbergi, þar sem nú er skrifstofa. 

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is


Gengið er inn á efstu hæðina og er þar fyrst komið inn í hol og þaðan gengið inn í stórar stofur og fallega borðstofu. Frá stofum er gott aðgengi út á stóra verönd þaðan sem er einstakt útsýni yfir garðinn og golfvöllinn.  Vel útbúið eldhús með vandaðri innréttingu, og frábærri eldunaraðstöðu, sannkallað eldhús fyrir matgæðinga, og er útgengi út á veröndina einnig frá eldhúsi. Þvottahús og gestasnyrting á hæðinni. Á veröndinni er frábær grillaðstaða. 

Gengið er niður á neðri hæðir og þar eru þrjú góð svefnherbergi, tvö baðherbergi og fataherbergi. Á neðstu hæðinni er svefnherbergi, og stórt tómstundarherbergi, sem nýta mætti sem svefnherbergi. Þar er lítil eldhúsinnrétting, baðherbergi og útgengi út í sundlaugargarðin. Þarna væri hægt að gera litla íbúð. Við sundlaugina er góð sólbaðs- og grillaðstaða.
Húsið er mjög vel útbúið; arinn, loftkæling, hiti og öryggiskerfi. Öryggisgrindur fyrir gluggum. Sérstæður bílskúr. Einkasundlaug. Selst með húsgögnum.

FALLEG EIGN Í GÓÐU ÁSTANDI ÞAR SEM VEL HEFUR VERIÐ HUGSAÐ UM ALLA HLUTI. SKOÐIÐ MYNDIRNAR OG SJÁIÐ MEÐ EIGIN AUGUM.
Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.
Hér er um að ræða algjöra lúxuseign fyrir fjölskylduna og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð: 595.000 Evrur. (ISK 86.200.000,- miðað við gengi 1E=145ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.


Eiginleikar: útsýni, bílskúr, air con, BBQ, einkasundlaug, geymsla, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
70000008

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
224 m2
Fjölbýlishús
423
378 þ.kr./m2
84.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
168 m2
Einbýlishús
423
522 þ.kr./m2
87.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
190 m2
Einbýlishús
423
436 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
135 m2
Parhús
533
644 þ.kr./m2
87.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache