Fasteignaleitin
Opið hús:29. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 28. feb. 2025

Baughús 14

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
228.2 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
634.969 kr./m2
Fasteignamat
149.850.000 kr.
Brunabótamat
121.400.000 kr.
Lára Þyri Eggertsdóttir
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2041049
Landnúmer
109742
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar, ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegar, ekki vitað
Frárennslislagnir
Upprunalegar. Myndaðar 2021 og voru þá í lagi.
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt, ekki vitað. Þakgluggi fjarlægður 2019.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Norður og vestur
Upphitun
Hitaveita
Gallar
Ummerki um leka voru sjáanleg undir eldhúsglugga á austurhlið efri hæðar og í lofti herbergis beint fyrir neðan. Einnig voru ummerki um leka á útvegg við svalahurð á norðurhlið efri hæðar. Viðgerð var framkvæmd að utan í maí 2025, um leið og húsið var málað að utan.
LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna glæsilegt og vel skipulagt einbýli á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr við Baughús 14 í Grafarvogi. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, sér þvottahús, sjónvarpshol, stórar stofur, mikið útsýni. Mikil lofthæð á efri hæð. Auðvelt er að stúka sjónvarpshol á neðri hæð af og útbúa þannig fimmta svefnherbergið. Eignin er skráð 228,2 fm hjá Þjóðskrá. Þar af er íbúð skráð 178,2 og bílskúr 50 fm. Hús og gluggar var málað að utan 2025.
Fallegur, gróinn garður með timburverönd í suður. Falleg eign í fjölskylduvænu og grónu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Egilshöll og verslunarkjarninn Spöngin eru næsta nágrenni. 
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Efri hæð: 
Mikil lofthæð er á efri hæð, stórir gluggar og fallegt útsýni til norðurs þar sem Esjan blasir við. 
Forstofa:
Flísar á gólfi, fataskápur.
Forstofuherbergi: Rúmgott og bjart. Parket og fataskápur. 
Eldhús: Parket á gólfi, hvít og viðarlituð U-laga innrétting með góðu skápaplássi, fallegt útsýni. 
Stofa og borðstofa eru samliggjandi: Mjög rúmgott og bjart rými, parket á gólfi. Mikil lofthæð og stórir gluggar. Útgengi á fallega timburverönd með heitum potti. Einnig er útgengi á stórar norður- og vesturvalir.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi, handlaug, salerni.
Stór og fallegur stigi liggur niður á neðri hæð. Stiginn er steyptur og parketlagður. Stór og fallegur gluggi nær frá efri hæð niður á neðri hæð sem setur einkar glæsilegan svip á húsið.

Neðri hæð: 
Hol og sjónvarpsrými: Parket á gólfi. Auðvelt er að stúka sjónvarpsrými af og útbúa fimmta svefnherbergið. Útgengi er frá neðri hæð í gróinn garð.
Svefnherbergi 2 (hjón): Mjög rúmgott, parket á gólfi, opið fataherbergi. 
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, fataskápur. 
Svefnherbergi 4: Parket á gólfi, fataskápur. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Innrétting með handlaug, baðkar, sturta, handklæðaofn, salerni.
Þvottahús: Steypt gólf, léttar hillur, skolvaskur, opnanlegur gluggi. 
Bílskúr er tvöfaldur (50 fm). Steypt gólf, heitt og kalt vatn, skolvaskur, geymsluloft, opnanlegir gluggar. Stórt bílaplan er fyrir framan bílskúr.
Snjóbræðsla er í bílaplani og í tröppum frá bílastæði að húsi. Dæla er nýleg.


Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/02/202293.250.000 kr.112.000.000 kr.228.2 m2490.797 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1991
50 m2
Fasteignanúmer
2041049
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
20.250.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásbúð 15
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Ásbúð 15
Ásbúð 15
210 Garðabær
199.3 m2
Einbýlishús
614
802 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bílskúr
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bleikjukvísl 2
110 Reykjavík
420.9 m2
Einbýlishús
1135
520 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Skoða eignina Eyrarbraut 12
Bílskúr
Skoða eignina Eyrarbraut 12
Eyrarbraut 12
825 Stokkseyri
190.3 m2
Einbýlishús
514
386 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Brekadalur 12
Bílskúr
Skoða eignina Brekadalur 12
Brekadalur 12
260 Reykjanesbær
245.5 m2
Einbýlishús
624
566 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin