LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 4. herbergja neðri sérhæð með sérinngangi á góðum stað við Lækjasmára 100 , 201 Kópavogi, ásamt stæði í bílageymslu og tveimur sérstæðum beint fyrir utan íbúðina. Nýlega endurnýjað baðherbergi, nýlega endurnýjað eldhús, endurnýjaðar neysluvatnslagnir inn á baðherbergi, og eldhúsi og búið að skipta um gler í flestum gluggum.
Samkvæmt HMS er eignin 146,2 m2 þar að 26,4 m2 stæði í bílageymslu. Stutt í alla þjónustu, heilsugæslu, íþróttasvæði, skóla og leiksskóla.* 26,4 m2 stæði í bílageymslu fylgir eigninni ásamt tveimur sér bílastæðum beint fyrir utan.
* Eldhúsið endurnýjað ásamt tækjum 2025
* Baðherbergið endurnýjað 2022.
* Skipt var um neysluvatnslagnir inn á baðherbergi 2022 og eldhúsi 2025
* Skipt um gler í öllum gluggum að undanskyldri svalahurð og litlum glugga fyrir ofan svalahurð 2022
* Parket pússað 2025
* Hús og þak málað 2020-2021Nánari lýsingForstofan er flísalögð með gólfhita.
Hol með stórum walk-in fataskáp með fallegum veggþiljum.
Stofa og borðstofa liggja saman og er útgengt út á sólríka verönd sem snýr til suðurs með rafmagnspotti
Eldhúsið er endurnýjað með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggð uppþvottavél, og Samsung ofn í vinnuhæð, span helluborð, gert er ráð fyrir ísskáp og vínkæli í innréttingu, falleg led lýsing yfir barborði sem hægt er að sitja við, sérsniðnar gardínur frá luxaflex.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott og með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö barnaherbergi bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, falleg innrétting með vaski ofan á og innbyggðum blöndunartækjum, walk-in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu undir þvottavél og þurrkara, nokkrar hillur og flísalagt gólf.
Sérgeymsla er innan íbúðar með máluðu gólfi.
Stæði í bílageymslu fylgir þessari íbúð en auk þess á eignin tvö stæði beint fyrir utan íbúðina, 3 fasa hleðslustöð ( leigustöð ) til staðar.Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla og frekari þjónustu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is