Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2024
Deila eign
Deila

Spánn-la Finca Resort

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
370 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.000.000 kr.
Fermetraverð
481.081 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Fasteignanúmer
9999997
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN.
Costablancaeignir.is og Miðbær fasteignasala kynna óhemjuglæsilegt og stórt einbýli á tveim hæðum og með stórum kjallara, einkasundlaug og sér garði á La Finca golfvellinum. Sérlega glæsileg hús með miklu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveim baðherbergjum. Kjallarinn býður upp á bílskúr, sjónvarpsherbergi, skrifstofu eða fit-ness room. Stór lóð og bílastæði innan lóðar.
Eignin er sérlega vönduð og glæsileg. Einkasundlaug og óhindrað útsýni yfir La Finca golfvöllinn. 


Nánari lýsing:
Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstou í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Tvö svefnherbergi og annað með sér baðherbergi  og auk þess eitt svefnherbergi til viðbótar. Á efri hæð er stór lúxus hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi og útgengi út á stórar svalir með útsýni yfir golfvöllinn og möguleika á heitum pott.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með glæsilegri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug og grill-svæði.
Rúmgóður kjallari (223,7 fm) undir húsinu, sem býður upp á mikla möguleika, td. fyrir bílageymslu, bíósal, ýmsar tómstundir og vinnu aðstöðu. 
Gólfhiti er í allri eigninni.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Speglar og sturtugler fylgir og auk þess home autamation kerfi.

Stærð húss: 147 fm
Stærð kjallara: 223 fm
Stærð verandar 119 fm
Stærð lóðar 460 fm.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við hið glæsilega klúbbhús á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

La Finca Resort er í um 30 mín akstur í suður frá Alicante. Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara sen og þá sem vilja njóta lífsins á fallegum kyrrlátum stað. 

Fyrsti áfangi er uppseldur. Annar áfangi var að koma í sölu. Aðeins örfá hús í boði, tilbúin til afhendingar í október 2025.

Verð 1.1190.000 Evrur. (178.800.000.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og þremur baðherbergjum. Stór sér lóð. Bílastæði inni á lokaðri lóð.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Traustur byggingaraðili, 

Allar upplýsingar gefur Sigfús Aðalsteinsson, löggiltur fasteignasali, gsm 8989979. sigfus@midbaer.is. Yfir 20 ára reynsla í sölu eigna á Costa Blanca húsæðismarkaðinum.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
https://www.midbaer.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
372 m2
Einbýlishús
523
480 þ.kr./m2
178.500.000 kr.
Skoða eignina Hæðarbyggð 5 - Auka íbúð
Hæðarbyggð 5 - Auka íbúð
210 Garðabær
374.4 m2
Einbýlishús
836
481 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Iðavellir 0
Bílskúr
Skoða eignina Iðavellir 0
Iðavellir 0
191 Vogar
396.5 m2
Einbýlishús
423
454 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Hellishólar 0
Bílskúr
Skoða eignina Hellishólar 0
Hellishólar 0
861 Hvolsvöllur
353.2 m2
Einbýlishús
1139
498 þ.kr./m2
176.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin