Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2024
Deila eign
Deila

Langamýri 8, Aukaíbúð

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
305.8 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
188.500.000 kr.
Fermetraverð
616.416 kr./m2
Fasteignamat
160.100.000 kr.
Brunabótamat
132.550.000 kr.
Lára Þyri Eggertsdóttir
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2071151
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar, ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegar, ekki vitað. Rafmafn yfirfarið 2024 og skipt umöryggi í töflu. Þriggja fasa rafmagn er í húsinu.
Frárennslislagnir
Upprunalegar, ekki vitað.
Gluggar / Gler
Upprunalegir. Svalahurð og gluggi í hjónaherbergi þarfnast endurýjunar. Búið er að panta nýjan ramma með svalahurð og glugga. Móða er í einu gleri í þvottahúsi.
Þak
Ekki vitað. Yfirfarið, ryðvarið og málað 2019. Þakkantur yfirfarinn og málaður 2019.
Svalir
Austur og vestur
Upphitun
Hitaveita. Gólfhiti í aðalíbúð í forstofu, eldhúsi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahúsi. Nýlegir ofnar eru í hjónaherbergi og einu barnaherb. á efstu hæð.
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Vart varð við leka frá svalahurð í hjónaherbergi fyrir ca. tveimur árum. Viðgerð var framkvæmd og hefur ekki lekið síðan að sögn seljenda. Búið er að panta nýjan ramma með hurð og glugga.
LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali kynna fallegt og vel skipulagt raðhús með bílskúr og aukaíbúð við Löngumýri 8 í Garðabæ. Á jarðhæð er stór forstofa, tvöfaldur bílskúr og aukaíbúð með sérinngangi. Á miðhæð er stórt alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, gluggar í þrjár áttir, tvennar svalir. Á miðhæð er einnig gestasnyrting og þvottahús. Á efstu hæð er opið og bjart sjónvarpsrými með mikilli lofthæð, stórt baðherbergi, þrjú stór svefnherbergi ásamt fataherbergi sem hægt væri að nýta sem fjórða herbergið. Falleg eign á barnvænum og rólegum stað í Garðabæ þaðan sem öll helsta þjónusta, skólar og leikskólar eru í göngufæri. 

Nánari lýsing á jarðhæð: 
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Innangengt er frá forstofu inn í tvöfaldan bílskúr. Auðvelt er að opna á milli forstofu og aukaíbúðar. 
Bílskúr: Steypt gólf, heitt og kalt vatn, skolvaskur, léttar hillur. Tvær innkeyrsluhurðir, önnur með rafmagnsopnun.

Miðhæð: 
Eldhús: Flísar á gólfi, vönduð, hvít innrétting frá Alno með góðu skápaplássi og sér tækjaskáp. Quartzsteinborðplata með góðu vinnuplássi og borðkrók, undirlímdur vaskur. Opið er á milli eldhúss, stofu og borðstofu.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi, mjög rúmgóðar og bjartar, parket á gólfi. Útgengi úr borðstofu á tvennar svalir, í austur og vestur.        
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og hluta veggja. Ljós innrétting með handlaug, upphengt salerni.   
Þvottahús: Flísar á gólfi. Hvít innrétting með skolvaski og góðu borðplássi. Opnanlegur gluggi.

Efsta hæð: 
Sjónvarpsrými: Opið og bjart, mikil lofthæð, parket á gólfi. Fjórir þakgluggar gera rýmið sérstaklega bjart og skemmtilegt. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart. Parket á gólfi, fataskápur. Útgengi á austursvalir.  
Tvö rúmgóð barnaherbergi eru á efri hæð, bæði parketlögð. 
Fataherbergi er á milli barnaherbergjanna, korkur á gólfi og gott skápapláss. Hægt væri að nýta fataherbergið sem fjórða svefnherbergið. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting með tveimur handlaugum og góðu skápaplássi, quartzsteinn á borðum. Sturta með sturtugleri, frístandandi baðkar, handklæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi. 

Aukaíbúð á jarðhæð: 
Sérinngangur frá garði. Möguleiki er á að opna á milli forstofu og aukaíbúðar. 
Íbúðin var útbúin 2015.
Eldhús: Flísar á gólfi, dökk innrétting, gott skápapláss. 
Alrýmið er bjart og rúmgott og nýtist sem svefnaðstaða og stofa, parket á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug, sturta, upphengt salerni. 

Garðurinn er fallegur, skjólgóður og í góðri rækt. Stórt, hellulagt bílaplan og hellulögð stétt meðfram suður- og vesturhlið.

Framkvæmdir undanfarið að sögn seljenda: 
2020
Gluggar málaðir að innan.
2019 Húsið múrviðgert og málað að utan. 
2019 Þak yfirfarið, ryðvarið og málað.
2019 Þakkantur yfirfarinn, lagfærður eftir þörfum og málaður.
Búið er að endurnýja stærri ofn í stofu og ofn í einu barnaherbergi á efstu hæð. 
Gler hafa verið endurnýjuð eftir þörfum í gegnum árin. 
Góflhiti var lagður undir flísar í forstofu, baðherbergi efstu hæðar, gestasnyrtingu og þvottahúsi. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/10/201565.300.000 kr.59.000.000 kr.305.8 m2192.936 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Melhæð 5
Bílskúr
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Melhæð 5
Melhæð 5
210 Garðabær
256 m2
Einbýlishús
735
695 þ.kr./m2
178.000.000 kr.
Skoða eignina Blikanes 8
Bílskúr
Skoða eignina Blikanes 8
Blikanes 8
210 Garðabær
257.5 m2
Einbýlishús
524
773 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Langamýri 3
Bílskúr
Skoða eignina Langamýri 3
Langamýri 3
210 Garðabær
364.8 m2
Einbýlishús
1137
532 þ.kr./m2
193.900.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 173
Bílskúr
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Langholtsvegur 173
104 Reykjavík
275.7 m2
Parhús
724
653 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin