Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

Tví/Þrí/FjórbýliÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
40.500.000 kr.
Fermetraverð
445.055 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
201220426
Landnúmer
0
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
3
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *RÚMGOTT FJARKAHÚS Á 2 HÆÐUM MEÐ STÓRUM SÓLRÍKUM GARÐI* *2 SVEFNHERBERGI OG 2 BAÐHERBERGI* *SÉR SUNDLAUG* *BÍLASTÆÐI Á LÓÐ*  

Þetta glæsilega fjarkahús er staðsett í eftirsóttu íbúðahverfi í Villamartín og hefur verið mikið endurnýjað af miklum metnaði. M.a. er búið að skipta um gólfefni, eldhús, baðherbergi, raflagnir, múrhúðun og lýsingu, sem skapar ferskt og nútímalegt heimili tilbúið til innflutnings. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Nánari upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, Sími 00354 893 2495. 


Nánari lýsing:
Eignin stendur á rúmgóðri einkalóð með flísalögðum veröndum og einkasundlaug með nuddi sem einnig er hægt að hita – fullkomið til notkunar allt árið um kring. Að auki er sameiginlegur sundlaugargarður örskammt frá.

Á neðri hæð hússins er björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, fallegt og nútímalegt eldhús, ásamt stílhreinu baðherbergi með sturtuklefa og þvottaaðstöðu. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og endurnýjað baðherbergi með sturtuklefa. Hjónaherbergið hefur sér svalir. Frá stigapalli liggur stigi upp á þaksvalir sem eru lagðar gervigrasi – tilvalið til slökunar eða samveru – auk geymslu undir stiganum. Ofan við stiga upp á þaksvalir er aukaherbergi með loftkælingu sem getur nýst sem þriðja svefnherbergi, heimaskrifstofa eða geymsla.

Þessi eign er á frábærum stað, aðeins um 500 metra frá allri helstu þjónustu, þar á meðal verslunum, börum, veitingastöðum og strætóstoppistöð. Vinsæla La Fuente verslunarsvæðið og Villamartín Plaza eru í um 20 mínútna göngufæri, en strendur, fjórir meistaramótsgolfvellir og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin eru í örstuttri akstursfjarlægð.
Einstök og afskaplega fallega uppgerð eign.

Húsið selst án húsgagna.

Verð 279.900 evrur eða 40.500.000 ISK (miðað við gengi 1Evra=145ISK)

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, sundlaug, air con, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
201220426
Fasteignanúmer
201220426
Fasteignanúmer
201220426

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klausturhólar C-Gata 23
Klausturhólar C-Gata 23
805 Selfoss
60.4 m2
Sumarhús
433
695 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Unnarbraut 28
Skoða eignina Unnarbraut 28
Unnarbraut 28
170 Seltjarnarnes
100 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
977 þ.kr./m2
97.700.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 12
Skoða eignina Háteigur 12
Háteigur 12
230 Reykjanesbær
63.4 m2
Fjölbýlishús
211
724 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Háengi 6
Skoða eignina Háengi 6
Háengi 6
800 Selfoss
73.5 m2
Fjölbýlishús
211
578 þ.kr./m2
42.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin