Fasteignaleitin
Skráð 15. jan. 2025
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
95.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
902.311 kr./m2
Fasteignamat
79.400.000 kr.
Brunabótamat
59.040.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 2019
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2507018
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upphaflegar lagnir
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir.
Frárennslislagnir
Upphaflegar lagnir
Gluggar / Gler
Upphaflegir nýlegir gluggar
Þak
Upphafleg þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
 
Domusnova og Sölvi Sævarsson kynna:  Glæsilega vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1 hæð með verönd í viðhaldslitlu lyftuhúsi ásamt bílastæði í upphitaðri bílageymslu við Smyrilshlíð 5 í Reykjavík. Leyfi er fyrir dýrahaldi í húsinu. Lokaður fallegur inngarður með leiktækjum. Bílastæði í bílageymslu, búið að leggja  fyrir hraðhleðslustöð við bílastæðiBílageymsla er á 1. hæð og er ekið inn af húsagötu. 

Eignin er í heild skráð 95,2 fm skv. Þjóðskrá Íslands, þar af er 9,6 fm geymsla.
Fasteignamat 2025 er 79.400.000.-    Byggingarár er 2019.
 
  • Góð lofthæð innan íbúðar.
  • Rúmgott stæði í bílageymslu.
  • Vandað parket og innréttingar.
  • Verönd í vestur út af hjónaherbergi.
 
Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:
Anddyri/ hol – Rúmgott anddyri með hvítum fataskápum sem ná upp að lofti. 
Eldhús – Eldhúsrými með hvítri eldhúsinnréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu sem fylgja. Eldunareyja með góðu borðplássi og ljósaháfi þar yfir.
Alrými - Stofa/borðstofa og sjónvarpsrými í einu góðu rými. Ljóskastarar í loftum sem fylgja eigninni. Vandað harðparket á gólfi. Svalahurð ( frönsk) er úr stofurými með handriði þar við.
Hjónaherbergi – Með hvítum fataskápum sem ná upp að lofti. Hurð út á verönd í vestur. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi - Ágætlega rúmgott með hvítum fataskáp sem nær að lofti. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi – Rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottarými og þurkara inni á baðherbergi. Hvít vönduð baðinnrétting með góðu skápaplássi ásamt speglaskáp ofan við handlaug. Led lýsing og undirljós ofan við handlaug. Walk inn sturturými með marmaraflísum á vegg og glerþili. Handklæðaofn á vegg og flísar á gólfi.

Innréttingar og gólfefni:  Innihurðar eru hvítar yfirfelldar. Innréttingar eru vandaðar og ná fataskápar að lofti. Harðparket er á allri íbúðinni að undanskildum votrýmum þar eru flísar á gólfum.  Loftljós íbúðar geta fylgt eigninni. Allir gluggar íbúðarinnar eru gólfsíðir.

Upplýsingar frá eiganda:
- Inngarður,  búið að samþykja að loka honum og er til eign í hússjóði fyrir framkvæmdini.
- Hurðapumpur niður í bílakjallara - Búið að samþykja að setja hurðapumpur.
- Bílastæði í bílakjallara með fjarstýrðum hurðaopnara og búið að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð
- Mjög virkt húsfélag. Sérstök hopp "stæði" fyrir utan inngarðinn fyrir húsfélagið. 

Sameign: Í sameign er rúmgóð sérgeymsla, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sérstæði merkt 01-E062 með lögn fyrir rafmagnsbíl.
Fallegur lokaður bakgarður með leiktækjum fylgir húsinu.

Nær umhverfið:
Staðsetning er í nálægð við útivistasvæðið í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og í göngufæri við bæði Háskóla Reykjavíkur og Háskóla Íslands og örstutt í Landspítala-háskólasjúkrahús og íþróttaaðstöðuna að Hlíðarenda. Matvöruverslun er í götunni og stutt í verslunarkjarna Kringlunnar. Golfhermir er kominn í hverfið.

Samantekt:
Hér er um að ræða virkilega fallega og nýlega eign. Húsið er  álklætt og viðhaldslítið með fallegri frágenginni lóð. Eign á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í alla þjónustu, verslarnir, skóla og leikskóla.
Eign sem vert er að skoða.  
 
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/03/202259.550.000 kr.71.500.000 kr.95.2 m2751.050 kr.
24/01/202023.200.000 kr.49.900.000 kr.95.2 m2524.159 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2507018
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E0
Númer eignar
62
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.290.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Smyrilshlíð 9
102 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
1010 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 1
Smyrilshlíð 1
102 Reykjavík
91.5 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Svarthamrar 40
Skoða eignina Svarthamrar 40
Svarthamrar 40
112 Reykjavík
106 m2
Fjölbýlishús
513
792 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 85
Skoða eignina Laugavegur 85
Laugavegur 85
101 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
312
963 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin