Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Hnjúkahlíð

Jörð/LóðNorðurland/Blönduós-540
163,335.3 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
5 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
36.028.000 kr.
Brunabótamat
124.145.000 kr.
Mynd af Friðrik Halldór Brynjólfsson
Friðrik Halldór Brynjólfsson
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2136566
Landnúmer
144796
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer hæðar
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu jörðina Hnjúkahlíð í Húnabyggð – fjölbreytt aðstaða til búsetu og hestamennsku í nágrenni Blönduóss.

Smelltu hér til að skoða myndband um eignina


Hnjúkahlíð stendur vestan undir Hnjúkunum, í um 3,7 km fjarlægð frá Blönduósi. Þar er stutt í verslanir, skóla og aðra þjónustu. Á jörðinni eru íbúðarhús, hesthús með tveimur innréttuðum íbúðarrýmum, rúmgóður kjallari, verkstæði og húsnæði sem nýtt er sem gallerí, vinnustofa og nuddaðstaða.

Land og skráðar upplýsingar: Jörðin er talin um 68–70 ha, en staðfest heildarlandstærð liggur ekki fyrir í fasteignayfirliti. Þar eru skráðir 16,3 ha af ræktuðu landi. 

Íbúðarhús: Húsið er byggt árið 1943 og er 97,7 m². Það skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sér þvottahús. Stofan er björt með gluggum á tvo vegu og útsýni yfir sveitina. Í eldhúsi er hvít innrétting og borðaðstaða við glugga. Tvö svefnherbergjanna eru með fataskápum. Baðherbergi er með sturtu, salerni og handlaug í innréttingu.
Mjög rúmgóður sólpallur er við íbúðarhúsið. 

Íbúðarrými eigenda í hesthúsi: Komið er að rúmgóðum palli þar sem er heitur pottur og 9.9fm bjálkahús sem búið er að einangra að utan. Nýtt sem gestaherbergi fyrir íbúð eiganda. 
Íbúðar hluti i hesthúsinu er á tveimur hæðum, talið um 160 m². Á neðri hæð eru forstofa, tvö rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús, innangengt er úr þvottahúsi í hesthúsið

Á efri hæð er þriðja svefnherbergið og bjart alrými undir súð með eldhúsi, borðstofu og stofu. Í eldhúsi er eyja með helluborði, bakaraofni og háfi yfir. Útsýni er yfir nærliggjandi sveit og gluggi úr stofu inn í hesthúsið er sérstakt einkenni rýmisins.

Útleigurými í hesthúsi: Með sérinngangi er snyrtilegt íbúðarrými sem hefur verið nýtt til útleigu til ferðamanna. það er talið um 28 m², auk um 10 m² svefnlofts með takmarkaðri lofthæð.

Í alrými eru eldhúsaðstaða, borðaðstaða, stofa og svefnkrókur. Brattur stigi liggur upp á opið svefnloft undir súð. Baðherbergi er með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél. Við inngang er lítill sólpallur með skjólvegg.

Hesthús: Hesthúsbyggingin er skráð frá árinu 1993. Rúmgóður miðgangur er með stíum beggja vegna, málmgrindum og gúmmímottum á stíugólfum. Góð lofthæð og gluggar meðfram útveggjum veita birtu og yfirsýn. Í húsinu eru tökubás, vinnuaðstaða og sér hnakkageymsla með skrifstofuaðstöðu. Stór uppdráttarhurð er á enda miðgangsins og innangengt er í þvottahús íbúðarrýmis eigenda. 
Gerði við hesthús: Við hesthúsið er gott gerði á malarpúða, afgirt með galvaniseruðum gerðisgrindum allan hringinn.
Í hesthúsinu er aðstaða fyrir allt að 30 hesta samkvæmt upplýsingum eigenda.

Kjallari og geymsla: Undir allri hesthúsbyggingunni er þriggja metra djúpur kjallari sem skiptist í tvö aðskilin rými. Annars vegar er haughús fyrir hesthúsið með innkeyrsluhurð frá Héðni og hins vegar um 127 m² geymslurými með rafdrifinni bílskúrshurð. Geymslurýmið er alveg aðskilið frá haughúsinu og hentar meðal annars til geymslu á bílum, tækjum og öðrum búnaði.

Verkstæði: Rúmgóður salur sem nú er nýttur til trésmíða og viðhaldsverkefna. Verkstæðið er um 120 m² og upphitað. Góð lofthæð er í húsinu, opið upp í mæni og steypt gólf. Þar er aðstaða fyrir vinnubekki, vélar og geymslu efniviðar. Breið tvöföld hurð og sér gönguhurð eru á gafli.

Gallerí, vinnustofa og nuddaðstaða: Bjartur salur með gluggum á fleiri en eina hlið, viðarklæddum veggjum og lofti sem fylgir þakformi. Þar er aðstaða til listsköpunar og sýningarhalds, ásamt kaffi- og setuaðstöðu. Í tengslum við salinn eru móttökuaðstaða og sér nuddrými. Baðherbergi er með sturtu, og aðstöðu fyrir þvottavél.

Hússtæði og lagnir: Á jörðinni eru tilbúnir dregarar fyrir um 80 m² hús. Allar lagnir að og frá hússtæðinu eru þegar til staðar. Við hússtæðið er malarplan sem er að hluta farið að gróa.

Öll íbúðarrými hafa verið uppgerð frá 2017 - 2026.

Það er þriggja fasa rafmagn og ljósleiðari á jörðinni, ásamt vatnsbóli með 3.000 lítra safntanki.

Hér er því um að ræða mjög áhugaverða eign í næsta nágrenni við Blönduós en jörðin býður upp á fjölda valkosta í búsetu, iðnaði, hestamennsku, ferðaþjónustu og svo frv.


Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 fridrik@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.






 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1951
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.495.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.495.000 kr.
Brunabótamat
7.550.000 kr.
Byggt 1968
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
380.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
380.000 kr.
Brunabótamat
1.915.000 kr.
Byggt 1943
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
11.500.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
11.500.000 kr.
Brunabótamat
19.900.000 kr.
Byggt 1943
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
383.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
383.000 kr.
Brunabótamat
1.930.000 kr.
Byggt 1959
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
2.510.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
2.510.000 kr.
Brunabótamat
12.650.000 kr.
Byggt 1993
335.3 m2
Fasteignanúmer
2136566
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
16.200.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
16.200.000 kr.
Brunabótamat
80.200.000 kr.
163,000 m2
Fasteignanúmer
2136566
Númer hæðar
Númer eignar
Húsmat
2.230.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
2.230.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (129)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Pálmalundur
Skoða eignina Pálmalundur
Pálmalundur
531 Hvammstangi
71.4 m2
Jörð/Lóð
211
559 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Merkigarður
Heitur pottur
Skoða eignina Merkigarður
Merkigarður
561 Varmahlíð
159,244.3 m2
Jörð/Lóð
41
1 þ.kr./m2
190.000.000 kr.
Skoða eignina Jarðlangsstaðir 3
Jarðlangsstaðir 3
311 Borgarnes
437,215 m2
Jörð/Lóð
0 þ.kr./m2
8.000.000 kr.
Skoða eignina Eyri Kjós Djúpagróf 4
Eyri Kjós Djúpagróf 4
276 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
22.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin