Fasteignaleitin
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Skráð 10. júní 2026

Blikabraut 15

Tví/Þrí/FjórbýliSuðurnes/Reykjanesbær-230
120 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
607.500 kr./m2
Fasteignamat
61.100.000 kr.
Brunabótamat
58.850.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2087191
Landnúmer
126689
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
endurnyjað að hluta
Frárennslislagnir
skolp endurnýjað
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
verönd
Upphitun
ofnakerfi / gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg, rúmgóð og mikið endurnýjuð sér hæð á besta stað miðsvæðis í Keflavík með sólpalli sem snýr í suður. Íbúðin er 4ra herbergja neðri sér hæð með sérinngangi og einkabílastæði. Árið 2019 var eignin nánast öll endurnýjuð innandyra á glæsilegan hátt en einnig er búið að fara í töluverðar endurbætur utanhúss og skolplagnir endurnýjaðar samkvæmt upplýsingum frá fyrri seljanda. Eignin skiptist í: forstofu, mjög stóra stofu þar sem hægt er að bæta við fjórða svefnherberginu ef þörf er á, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús með góðu geymsluplássi og litla geymslu undir stiga rými. Á bak við húsið er sérbílastæði og hægt er að fara inn í eignina beint frá bílastæðinu í gegnum þvottahúsið. 
Eignin er í stuttu göngufæri frá Reykjaneshöllinni, fjölbrautaskólanum, Holtaskóla, leikskóla, sundlauginni og öllum helstu verslunum sem til dæmis verslunarmiðstöðin Krossmói hefur upp á að bjóða, svo fátt eitt sé nefnt.  

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Sérbílastæði er við bakhlið hússins. Frá bílastæðinu er hægt að ganga með fram gafli hússins að aðalinngangi hans en einnig er hægt að ganga beint frá bílastæðinu inn í eignina um sérinngang sem leiðir inn í þvottahús hennar. 
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegum ljósum flísum á gólfi og fatahengi. 
Stofa + borðstofa: Komið er inn úr forstofu inn í mjög stórt stofurými sem rúmar vel bæði setustofu og borðstofu. Fallegt og vandað harðparket er á gólfum í stofurýminu. Hægt er að ganga frá stofunni út á sér suðurverönd með skjólveggjum. Stofurýmið er það stórt að hægt er að bæta við auka svefnherbergi í hluta af stofunni og hefur eignin verið nýtt þannig á fyrri árum. 
Eldhús: Eldhúsið er sérlega fallegt og allt endurnýjað síðan 2019. Innrétting er á tvo veggi með skemmtilegri eyju á milli. Eldhúsið er í sérrými en opið er að hluta milli eldhúss og stofu. Innrétting er dökk með ljósri borðplötu. Neðri skápar eru við glugga, á móti er innréttingin frá gólfi og upp í loft með innbyggðum ísskáp og nýlegum ofni í vinnuhæð ásamt búrskáp og fleira, í eyjunni er eldavél og góðar skúffur ásamt barborði sem hægt er að sitja við. Gólfhiti er rýminu. Innangengt er frá eldhúsinu inn í sér þvottaherbergi. 
Baðherbergi: Baðherbergið er einnig glæsilega endurnýjað með fallegum ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Stór sturta beint á gólf er í enda baðherbergisins með glervegg með skyggðu gleri og svörtum ál ramma. Dökk innrétting er undir vaskaborði með ofanáliggjandi vaski. Á vegg fyrir ofan vask er fallegur hringspegill með hulinni lýsingu. Gluggi er á baðherberginu og gólfhiti í gólfum. 
3 x svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi eru í eigninni. Öll herbergin eru með fallegu vönduðu harðparketi á gólfi. tvö af herbergjunum eru einnig með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Eins og áður sagði þá er auðvelt að bæta við fjórða svefnherberginu i stofurýminu ef þörf er á. 
þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er inn af eldhúsinu með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísum á gólfi og hurð þar sem hægt er að ganga út úr eigninni út á bílastæðið sem fylgir íbúðinni. 
Geymsla: Undir stiga rými er lítil geymsla innan íbúðar. Einnig er sameiginleg geymsla með efri hæðinni sem íbúðin hefur aðgengi að. 

Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda:
Eignin var mikið endurnýjuð haustið 2019, eftirfarandi var endurnýjað:

Sprunguviðgerðir og utanhúss málning sumarið 2019
Nýlegir gluggar eru í íbúðinni, skipt um allar útihurðar.
Eldhúsinnrétting og blöndunartæki
Ný innbyggð uppþvottavél, ísskápur og helluborð
Allt nýtt inn á baði og þvottaherbergi.
Fataskápar, innihurðar, sólbekkir
Rafmagnsefni og lýsing. Pípulagnir endurnýjaðar að hluta, gólfhiti í eldhúsi og baði
Skolplagnir endurnýjaðar.
Parket, flísar.
Sólpallur byggður sumarið 2020

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/12/202035.350.000 kr.42.500.000 kr.120 m2354.166 kr.
03/10/201822.600.000 kr.28.700.000 kr.120 m2239.166 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grýtubakki 28
Skoða eignina Grýtubakki 28
Grýtubakki 28
109 Reykjavík
80.2 m2
Fjölbýlishús
211
734 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3 með bílskúr
Bílskúr
Selvogsbraut 3 með bílskúr
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 24
Skoða eignina Skipholt 24
Skipholt 24
105 Reykjavík
102 m2
Fjölbýlishús
314
783 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin