Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Austurhólar 2, íbúð. 207, 800 Selfoss. Íbúðin er í nýlegri 5 hæða blokk á Selfossi staðsett á 2. hæð hússins, byggð árið 2023 úr steypu. Birt stærð eignarinnar er 101.5m
2. Húsið er klætt að utan með sléttu og báruðu áli í bland. Allir gluggar eru ál/tré gluggar, þ.e. hvítmálað timbur að innan en áklæddir að utan.
Opin forstofa með fataskáp. Eldhús og stofa í opnu rými, brún innrétting frá Cobo með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Borðplötur svartar quarts. Hurð úr stofu út á flísalagðar svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Á gólfum er parket. Baðherbergi flísalagt með ljósum flísum, opin flísalögð sturta, innrétting með quarts borðplötu. Efri skápur er speglaskápur. Geymsla/þvottahús með flísum í sérrými. Innréttingar og fatskápar eru úr hnotu. Electrolux tæki í eldhúsi. Yfirfelldar hvítlakkaðar innihurðir.
Íbúðin er á endanum sem gefur íbúðinni töluvert meiri birtu en þær íbúðir sem eru fyrir miðju. Fallegt útsýni að Ingólfsfjalli frá svölu og úr stofu sem er kostur. Íbúðin er staðsett í úthverfi Selfoss en nokkuð langt í verslun og skóla. Stutt í leikskóla sem er kostur. Blokkin er vel frá gengin og snyrtileg.
Nánari upplýsingar veitir
Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209