Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2026

Loðmundartangi 2

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Flúðir-846
161.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
493.515 kr./m2
Byggt 2025
Sérinng.
Fasteignanúmer
253587622
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir parhús við Loðmundartanga 2 við Flúðir í Hrunamannahreppi. Fallegt og vel skipulagt 4.herbergja parhús með innbyggðum bílskúr. Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni. Birt stærð eignar er 161,9fm og þar af er íbúðarhluti 131,5fm og bílskúr 30,4fm. Húsið skilast tilbúið til málunar. Fokheldisúttekt er komin.

Eignin skiptist í rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, hjónasvítu með baðherbergi, tvö barnaherbergi, forstofa, baðherbergi og þvottahús ásamt bílskúr.

Nánari lýsing:
Sökklar: Sökklar eru steyptir og einangraðir að innan.
Gólfplata: Gólfplata er steypt og einangruð með gólfhita í. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum, rör í rör.
Útveggir: Allir útveggir hússins eru úr timburgrind. Húsið er klætt að utan með litaðri svartri smábáru frá Húsasmiðjunni, timbur inn í innskoti við innganga.
Gluggar og hurðir: Allir gluggar og útihurðir eru úr ál/tré. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda. Söluaðili er Gluggatækni. Litur að utan er RAL 9005 (svart) og sami litur að innan.
Þak: Tvíhalla þak er á húsinu og er það lituð stálklæðning í lit RAL 9005 (svart). Þakkantur: Þakkantur er timburklæddur með svörtum lit
Niðurföll og þakrennur: Þakniðurföll eru úr áli frá Hagblikk og rennur eru úr plasti frá Húsasmiðjunni. Lóð: Lóð afhendist tyrfð.
Afhending: Húsið skilast tilbúið til málunar. Fokheldisúttekt er komin.

Hönnun og byggingarnefndarteikningar eru frá Pro-Ark. Verkfræðiteikningar vann Friðrik Ólafsson. Raflagnahönnun er unnin af Raflagnaþjónustu Suðurlands ehf.

Almennt: 
Seljandi greiðir gatnagerðargjald, byggingarleyfis- og stofngjöld holræsa ásamt inntaksgjöldum rafmagns-, hitaveitu- og kaldavatns. 
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
101 Reykjavík fasteignasala
www.101.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reynihlíð 20B 202
Bílskúr
Efsta hæð
Hleðslustöð
Reynihlíð 20B 202
604 Akureyri
165.6 m2
Fjölbýlishús
514
688 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 5
Skoða eignina Hulduholt 5
Hulduholt 5
603 Akureyri
150.7 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 79.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laugavegur 170 íb106 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:01. okt. kl 17:00-17:30
Laugavegur 170 íb106 Heklureitur
105 Reykjavík
158.5 m2
Fjölbýlishús
422
977 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrlaheiði 43
Á einni hæð
Skoða eignina Smyrlaheiði 43
Smyrlaheiði 43
810 Hveragerði
114.1 m2
Fjölbýlishús
413
635 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin