Opið hús þriðjudaginn 24. nóvember frá kl 16:30 til 17:15 - Framnesvegur 42, 101 Reykjavík
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og vel skipulögð eign í nýlegu (byggt 2019) húsi á frábærum stað í gamla Vesturbænum. Íbúðinni hefur verið skipt og nýtist sem tvær aðskildar íbúðir.
Eignin er samtals 100,7 fm (efri hæð 43,4 og neðri hæð 57,3 fm). Hægt er að ganga beint inn í íbúðina á neðri hæðinni um sérinngang úr portinu aftan við húsið.Einnig væri einfalt að sameina íbúðirnar aftur og nýta báðar hæðir saman.
Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 eða á netfanginu olafur@hibyli.isLýsing eignar:Sameiginleg
forstofa með harðparketi á gólfi og fataskáp. Tvær útidyrahurðir þar sem gengið er inn í
efri íbúðina og í
neðri íbúðina.Efri íbúð 0101.Eldhús: Dökk viðarinnrétting, tengi fyrir þvottavél, harðparket á gólfi, borðkrókur, opið við stofu.
Setustofa: Björt stofa er opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á
svair sem snúa inn í bakgarð og port aftan við húsið.
Svefnherbergi: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salerni, svört viðarinnrétting undir vaski, handklæðaofn.
Neðri íbúð 0001: Úr sameiginlegri forstofu er gengið niður steyptan og breiðan stiga í íbúð neðri hæðar. Stiginn er teppalagður og með stálhandriði.
Sjónvarpshol: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Eldhús: Dökk viðarinnrétting með góðu skáplássi, harðparket á gólfi, gluggi. Léttur veggur aðskilur eldhús og svefnrými.
Svefnrými: Harðparket á gólfi, útgengi á steypta verönd með sérafnotarétti, þessa hurð er einnig hægt að nýta sem sérinngang í íbúðina á neðri hæðinni.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salernu, svört innrétting undir vaski, handklæðaofn.
Þvottahús/geymsla: Innst í íbúðinni, flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, skolvaskur, skápur aftan við hurð. Inn af þvottahúsinu er lítil
geymsla þar sem væri hægt að setja upp hillur á sitthvora höndina.
Falleg og vel staðsett eign með góða tekjumöguleika - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina og Grandann. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is