Valhöll og Sölvi Sævarsson lgfs, kynna: Snyrtilegt og vel staðsett 261,1 m² verslunarhúsnæði í Glæsibæ að Álfheimum 74 í góðu verslunar- skrifstofu-, og þjónustuhúsi. Hús sem hýsir verslanir, skrifstofur, læknastofur, ofl.
Húsnæðið er vel staðsett á 1. hæð á góðum stað í húsinu og er með einu fastanúmeri, en er nýtt sem tvö pláss í dag og hefur verið þannig síðastliðin ár. Húsnæðið er með góðum gluggum á aðkomuhlið, austurhlið sem snýr að bílaplani sem og á vesturhlið hússins sem snýr að bílaplani og að Læknastöð sem býður upp á gott auglýsingagildi fyrir þá starfsemi sem þar er.
Fasteignamat 2026 er 118.700.000.-kr. Byggingarár er 1970.
Um er að ræða fastanúmer 222-9067 (tvö leigupláss eins og húsið er nýtt í dag) og er tvennskonar rekstrarstarfsemi í húsnæðinu.
Eignarhald 01-0115 er í heild 261,1m² og skiptist í eftirfarandi skv skráningu:
Rými 01-15 sem er 106,1 m², geymsla 01-29- sem er 5,9 m² og rými 01-37 sem er 149,1 m² eða alls samtals 261,1 m².
Rými nr 1: 149,1 m² - Er með inngangi á norðurhlið hússins (Heyrnartækni) er þar til húsa í dag, þar sem farið er inn í anddyri (móttökurými) þar eru fjórar skrifstofur, snyrting og eldhúsrými ásamt lítilli geymslu.
Góð lofthæð er í rýmunum og er kerfisloft og harðparket á gólfum. Góðir gluggar eru á aðkomu- austurhlið og vesturhlið hússins sem býður upp á möguleika á góðu auglýsingagildi fyrir þá starsemi sem þar er.
Rými nr 2: 106,1 m² og geymsla 5,9 m² samtals 112 m² - Er með inngangi utanfrá á austurhlið hússins (Lean Body var þar áður) og einnig með inngangi frá sameign hússins. Möguleiki er að gera eldhús í rýminu þar sem er ræstivaskur í dag. Einnig er möguleiki að gera salerni og ræstingu í geymslu þar sem er 110 mm frárennslislögn. Lofthæð er góð með kerfislofti og harðparketi á hluta rýmissins. Rými nr 2 er einnig með góða glugga á austurhlið (aðkomuhlið) þess rýmis sem gefur möguleika á að auglýsa vel þá starfsemi sem þar er.
Möguleiki er að breyta húsnæðinu og gera rými 1 og 2 að einu stærra rými með góðu aðgengi inn í sameign hússins þar sem stutt er í aðra starfsemi í húsinu svo sem, verslun, bakarí, læknastofur ofl starfsemi.
Þetta er ágætt húsnæði sem hentar vel fyrir hverskonar verslunar- eða þjónustu starfsemi. Gott aðgengi og næg sameiginleg bílastæði á bílaplani framan við hús og í bílastæðahúsi.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu sbr verðskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.