LÓB fasteignir kynna í einkasölu fasteignina Dælengi 19. Eignin er vel skipulögð, 6-7 herbergja, fjölskylduvænt einbýlishús á góðum stað á Selfossi. Húsið er byggt árið 1975 og er timburhús klætt með áli. Eignin er með birta stærð 188 m2, sem skiptist í einbýlishús stærð 142,2 m2 og bílskúr stærð 45,8m2. Að innan skiptist eignin í anddyri, stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, 6* svefnherbergi (þar af eitt í bílskúr), þvottahús og bílskúr. Eignin er staðsett innst í Dælenginu á móts við Dælengisróló. Eignin stendur í mjög grónu hverfi á Selfossi og stutt í alla þjónustu.
Nánari lýsing.
Anddyri er með vínilparketi á gólfi og þar er góður fataskápur. Fostofuherbergi er parketlagt. Gestasalerni er með vínilparket á gólfi, salerni og handlaug. Stofa, sjónvarpshol og gangur er með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og björt. Úr sjónvarpsholi er útgengt á skjólsaman sólpall. Eldhús er með góðri innréttingu með góðu skápaplássi. Vínilparket eru á gólfi og eldhúskrók. Inn af eldhúsi er gengið í þvottahús sem er flísalagt. Í þvottahúsi er nýleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og með góðu skápaplássi og búrskáp. Frá þvottahúsi er svo útgengt að bílastæðum og bílskúr. Svefnherbergin eru 6 talsins þar af eitt í bílskúr. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp og útgengt á pall. Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, hornbaðkari, gólfsturtu og innréttingu. Bílskúrinn er með innkeyrsluhurð, búið er að stúka af gott herbergi innst í bílskúrnum, flotað gólf og gólfhiti í bílskúr. Einnig er útgengt úr herberginu í bakgarð.
Garðurinn er þökulagður og gróinn, fyrir framan hús er nýlegur pallur með skjólvegg. Að aftan er eldri sólpallur með heitum pott og skjólveggjum.
Mjög stutt í leikvöll, stutt í alla grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og miðbæinn.
Í heildina vel skipulögð og góð eign sem vert er að skoða.
Bókið skoðun hjá Kristófer, kristo@olafur.is eða síma 695-6134
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LÓB fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.