Fasteignaleitin
Skráð 9. júlí 2026

Brekkugerði 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
682.8 m2
13 Herb.
7 Svefnh.
5 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
343.100.000 kr.
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20338902
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir Brekkugerði 8, frábærlega staðsett sögufrægt einbýli í grónu hverfi á besta stað miðsvæðis í Reykjavík. Húsið, sem er skráð 682,8 fermetrar í fasteignamati er byggt árið 1972 fyrir Vladimir Ashkenazy píanóleikara og fjölskyldu hans. Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni og Bjarna Marteinssyni, og vakti bygging þess mikla athygli á sínum tíma. Eignin stendur á 1.727 fermetra lóð sem upphaflega voru tvær lóðir en voru sameinaðar í eina til að hægt væri að byggja hús af þessari stærð og gæðum. Aðkoma er að húsinu á tveimur stöðum, bæði að aðalinngangi og bakinngangi, og er fjöldi bílastæða við húsið. Húsið einkennist af virðulegri aðkomu og forstofu, stórum stofum, vel búnu atvinnueldhúsi þar sem útbúa má stórar veislur, fjölda herbergja, hljómleikasal í kjallara og fjölda svefnherbergja ásamt fimm baðherbergjum og sauna. Lóðin er afar skjólsæl og býður uppá góð útisvæði, þar sem núverandi eigandi telur vera heitasta stað í Reykjavík. Óvanalega glæsileg eign fyrir fagurkera sem kunna að meta sögu hússins.

Allar upplýsingar veita Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is, og Kjartan Hallgeirsson lgfs., 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is


Húsið er byggt í tveimur hlutum eða álmum, efri og neðri álmu, með tengingu á milli auk bílskúrs við enda neðri ámunnar. Aðalinngangur hússins er í neðri álmunni, sem er á einni hæð, við hlið bílskúrs með mjög rúmgóða aðkomu í gegnum öryggishlið þar sem eru 7-8 bílastæði. Komið er inn í anddyri með upprunalegum mósaík-flísum á gólfi, en þar fyrir innan tekur við virðuleg forstofa með afar fallegum upprunalegum viðarklæðningum á veggjum og upprunlegum fataskápum. Til vinstri úr forstofu er gestasalerni og forstofuherbergi innréttað sem powder-room með tvöföldu salerni og vandaðri snyrtiaðstöðu ásamt stórum fataskáp. Til hægri frá forstofu er mjög stór og björt stofa með mikilli lofthæð og háum gluggum á tvo vegu. Núverandi eigandi hefur sýnt sögu og hönnun hússins mikla virðingu og haldið upprunalegum innréttingum og frágangi þessa hluta hússins afar vel við.

Úr forstofu og stofu er gengið í tengibyggingu milli efri og neðri álmu. Í tengibyggingunni er annars vegar borðstofa með stórum gluggum og tvöföldum dyrum út á verönd í góðu skjóli milli húshlutanna, og hins vegar stórt vel búið atvinnueldhús sem getur annað stórum veislum. Milli eldhúss og borðstofu er gangur sem tengir saman forstofu neðri álmunnar eru stigahús efri álmunnar, þar sem er gengið í báðar hæðir efri álmunnar. Úr borðstofu eru einnig nokkrar tröppur beint í tónlistarherbergi/studió sem er á neðri hæð efri álmunnar, en segja má að húsið sé allt hanna utan um það rými. Kjallari er undir tengibyggingunni sem gengið er í úr neðri hæð efri álmunnar.

Efri álma hússins er á tveimur hæðum. Sé gengið upp stiga úr áðurnefndum tengigangi, þá er svefnálma til hægri og lítið séríbúð til vinstri. Í svefnálmu er stór hjónasvíta með seturými og útgengi út á stórar svalir, fataherbergi og sér baðherbergi; úr baðherbergi er hringistigi niður í spa-rými á neðri hæð álmunnar, þar sem er salerni, sturta og sauna. Í svefnálmu efri hæðar er einnig eitt stórt svefnherbergi og annað minna, og sér baðherbergi ætlað þessum herbergjum. Í séríbúð til vinstri frá stiga er lítið stofurými, sér eldhús, svefnherbergi og baðherbergi ásamt sérinngangi af baklóð hússins.
Á neðri hæð álmunnar, undir svefnherbergjum og séríbúð, er fyrst komið í stórt fjölskyldurými þar sem er sjónvarpsaðstaða og sér eldhúsrými. Úr þessu rými er aðgengi að áðurnefndu spa-rými en einnig er útgangur að lóð hússins bæði úr fjölskyldurými og spa-rými. Úr fjölskyldurými er einnig gengið í hljómleikasal/studíó hússins, sem er sérhannað og innréttað rými fyrir tónlistarflutning sem einnig mætti nýta sem upptökurými. Þetta er mjög athyglisvert rými, þar sem núverandi eigandi hefur sem fyrr gætt að sögu hússins og viðhaldið upprunalegum innréttum. Úr fjölskyldurými eru tröppur niður í kjallara undir tengibyggingu, þar sem er stórt þvottahús, geymslur og tvær eldtraustar geymslur ásamt lagnarými. Seljandi hefur endurnýjað lagnir og raflagnir að miklu leiti, og meðal annars gengið frá nýjum jarðtengingum rafkerfis til að lágmarka rafmengun.

Bílskúr er rúmgóður og vel við haldið. Við húsið er stórt hellulagt plan með hitalögn að framanverðu við aðalinngang, þar eru bílastæði fyrir 7-8 bíla, auk þess er að ofanverðu bílastæði fyrir 3-4 bíla. Öryggisgirðing er í kringum lóðina og öryggishlið að báðum aðkomum að húsinu. Viðamikið kerfi öryggismyndavéla er við húsið.  Húsið er allt nýlega málað og lítur afar vel út. Núverandi eigandi skipti um þakið í heild sinni þegar hann keypti húsið árið 1990, en árið 2021 var þakið ryðhreinsað og sprautumálað með lakki. Fyrir 12 árum eða svo var skipt um allar rúður í húsinu sem eru 260 talsins, og sett K-gler í alla glugga. Leigutaki hússins síðustu 11 ár setti síðan öryggisfilmur innan á allar rúður, en húsið var í útleigu til sendiráðs.

Brekkugerði 8 er einstök vel staðsett eign, stór og mjög rúmgóð og býður uppá möguleikann að taka á móti fjölda gesta, og hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina. Mjög gróin falleg lóð. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð, því almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
IMG_1592.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
Lofnarbrunnur 28
113 Reykjavík
213.8 m2
Raðhús
423
758 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Hvassahraun 16
Bílskúr
Skoða eignina Hvassahraun 16
Hvassahraun 16
191 Vogar
152.9 m2
Einbýlishús
423
Fasteignamat 31.250.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laugarnesvegur 79
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Laugarnesvegur 79
105 Reykjavík
95.2 m2
Fjölbýlishús
312
682 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 23
Skoða eignina Efstaleiti 23
Efstaleiti 23
103 Reykjavík
44.1 m2
Fjölbýlishús
111
1200 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin