Brekkulækur – glæsileg ferðaþjónustueign með jörðum, húsakosti og verðmætum hlunnindumDomus Fasteignasala kynnir til sölu jörðina Brekkulæk í Miðfirði Húnaþingi vestra.
Smelltu hér til að skoða myndband fyrir gestahúsiðSmelltu hér til að skoða myndband fyrir hesthúsiðSmelltu hér til að skoða kynningarmyndand um eigninaUm er að ræða einstakt tækifæri til kaupa á vel uppbyggðri ferðaþjónustueign ásamt jörð, fjölbreyttum húsakosti þar á meðal mjög flottu hesthúsi, rekstrartengdum búnaði, innbúi og verðmætum hlunnindum.
Eignin býður upp á fullbúna aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og fylgir með allur sá búnaður sem nauðsynlegur er til áframhaldandi reksturs. Á staðnum er hitaveita og ljósleiðaratenging.
Brekkulækur er vel staðsettur í gróinni sveit á Norðurlandi vestra, á hentugri leið milli Reykjavíkur og Akureyrar. Umhverfið er fallegt og friðsælt og eignin nýtur nálægðar við eina þekktustu laxveiðiá landsins, Miðfjarðará. Ferðaþjónustan hefur byggt upp gott orðspor og hefur myndað sterk tengsl í gegnum árin.
Seljandi er opinn fyrir því að skoða eignaskipti.
Heimasíða starfseminnar:
www.abbi-island.isFastanúmer og landeignirEignin samanstendur af tveimur fastanúmerum:
Brekkulækur IIFastanúmer:
F213-3283Landnúmer:
L219930Brekkulækur IIIFastanúmer:
F231-7856Landnúmer:
L217343Brekkulækur IIÁ Brekkulæk II er skráð
2,4 hektara jörð ásamt eftirfarandi mannvirkjum:
- 800,9 fm gistihús
- 12,3 fm svefnskáli
- 47,7 fm starfsmannahús
Gistihúsið var upphaflega reist árið 1936, en hefur verið stækkað og mikið endurnýjað, meðal annars á árunum 1993 og 2012. Húsið er í góðu ásigkomulagi og hefur fengið reglulegt viðhald.
Skipulag gistihússÍ húsinu er meðal annars:
- gestamóttaka
- snyrtingar og baðherbergi
- setustofur
- matsalur
- rúmgott og vel búið eldhús
- fjölbreytt gisti- og íbúðarrými
Herbergjaskipan er eftirfarandi:- 7 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu
- 3 tveggja manna herbergi með vaski og aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
- 6 eins manns herbergi með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
- 1 tveggja herbergja íbúð með eldhúsi og baðherbergi
- 1 fjögurra manna fjölskylduherbergi með sérinngangi og baðherbergi
- 1 þriggja herbergja íbúð- 1 fimm herbergja íbúð, sem nú er nýtt sem aðsetur eiganda
Húsakostur á Brekkulæk II er almennt í góðu ástandi og hentar vel fyrir áframhaldandi rekstur ferðaþjónustu.
StarfsmannahúsÁ jörðinni er einnig
47,7 fm A-bústaður, byggður árið
1989.
Bústaðurinn er nýttur sem starfsmannahús og skiptist í:
- tvö svefnherbergi
- eldhús
- setustofu
- baðherbergi
- Starfsmannahúsið er í nokkuð góðu ástandi.
Brekkulækur IIIÁ Brekkulæk III er skráð
239,6 hektara jörð ásamt fjölbreyttum húsakosti, ræktuðu landi og verðmætum veiðihlunnindum.
Meðal þess sem fylgir:
- 82,1 fm geymsla, byggð árið 1930
- gömul hlaða
- 24 hektarar af ræktuðu landi
- 4,3% eignarhlutur í Miðfjarðará, sem skilar góðum árlegum tekjum
- 465,8 fm fullbúið hesthús
- upphituð tækjageymsla með snyrtingu og heitu og köldu vatni
- tveggja herbergja íbúð yfir tækjageymslu
Hesthús og tækjageymslaÁ jörðinni er
465,8 fm hesthús, byggt árið
2015. Hesthúsið er vel útbúið og inniheldur:
- 10 eins hests stíur- 4 tveggja hesta stíur- tækjageymslu
- snyrtingu
- upphitun
- rennandi heitt og kalt vatn
Yfir tækjageymslunni er um
50 fm tveggja herbergja íbúð með innangengt á milli rýma.
Mannvirki á Brekkulæk III eru almennt í ágætu ástandi.
Veiðihlunnindi og réttindiBrekkulækur á aðild að
Veiðifélagi Miðfjarðarár.Jörðin nýtur umtalsverðra laxveiðihlunninda tengdum Miðfjarðará, sem hafa skilað góðum tekjum árlega.
Brekkulækur er einnig aðili að
Veiðifélagi Arnarvatnsheiðar og Tvídægru. Félagið greiðir ekki út arð til félagsmanna, en tekjur af sölu veiðileyfa eru nýttar til uppbyggingar og viðhalds, svo sem á skálum, vegum og öðrum innviðum á afrétti Miðfirðinga, eða með öðrum hætti sveitarfélaginu og svæðinu til hagsbóta.
Félagsmenn geta, eftir nánara samkomulagi og í samráði við formann veiðifélagsins, fengið heimild til eigin veiða í vötnum á heiðinni.
SamantektBrekkulækur er afar áhugaverð eign fyrir þá sem leita að rótgróinni ferðaþjónustueign með miklum húsakosti, fallegu umhverfi, góðri staðsetningu og verðmætum hlunnindum.
Hér sameinast sveitasæla, ferðaþjónusta, landgæði, rekstrarmöguleikar og tekjuskapandi veiðiréttindi á einstaklega eftirsóknarverðum stað á Norðurlandi vestra.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is, Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is og Sigurður Pétur Stefánsson s 698-6971 siggi@domus.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.