VALHÖLL og Kristín Einars. lögg.fasteignasali kynna einkar rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð með sérinngangi, í þríbýlishúsi á eftirsóttum, rólegum stað í vesturbæ Reykjavíkur við Lynghaga 16.
Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar auk sameiginlegs þvottahúss.
Baðherbergi, eldhúsinnrétting og parket í íbúðinni hafa verið endurnýjuð í gegnum árin.
Samkvæmt upplýsingum seljanda voru raflagnir og rafmagnstafla, klóaklagnir undir húsi og út í götu og drenlagnir endurnýjaðar 2008.
Íbúðin er 86,8 fm. Fasteignamat ársins 2027 er 77.150.000.
Lýsing eignar:
Forstofa: flísalögð og þaðan er innangengt í sameiginlegan kyndiklefa og sameiginlegt þvottaherbergi með glugga.
Hol: með eikarparketi á gólfi.
Stofa: stór og björt, eikarparket á gólfi.
Eldhús: rúmgott, harðparket á gólfi og með fallegum hvítum innréttingum flísalagt á milli skápa og borðplötu.
Tengi fyrir uppþvottavél og góð borðaðstaða í eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, mosaiklagðir veggir, sturta með flísum á gólfi, handlaug með skápainnréttingu.
Svefngangur: Eikarparket á gólfi, innbyggður fataskápur.
Barnaherbergi: með eikarparketi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, eikarparket á gólfi, innbyggður fataskápur.
Geymsla: Rúmgóð með hillum.
Í sameign eru:
Þvottaherbergi með glugga, lakkað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Kyndiklefi með glugga.
Lóðin er falleg og ræktuð í óskiptri sameign allra íbúða hússins. Tyrfðar flatir og fallegur gróður eru á fram- og baklóð hússins.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á eftirsóttum stað þaðan sem stutt er að ganga á háskólasvæðið, í leikskóla og miðbæinn.
Leikvöllur er örstutt frá húsinu.
Ægisíðan er aðeins í örstuttu göngufæri en þaðan liggja m.a. vinsælir göngu-og hjólastígar til Nauthólsvíkur, Öskjuhlíðar og um Fossvogsdal.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / kristin@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.