Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2026

Aðalstræti 4

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
335.5 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
238.000.000 kr.
Byggt 1859
Sérinng.
Fasteignanúmer
21446231
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir Gamla Apótekið, Aðalstræti 4, Akureyri. Hús var upphaflega byggt árið 1859 en endurgert af Minjavernd á árunum 2016 - 2017 með áherslu á að varðveita einstakan karakter og sögulegt yfirbragð þess. Í húsinu eru í dag þrjár íbúðir, auk glæsilegrar sauna- og sturtuaðstöðu í kjallara ásamt skíðageymslu. Húsið hentar einkar vel fyrir stórfjölskyldu eða vinahóp sem vill njóta samveru en jafnframt hafa gott rými og næði. Sameiginlegt, rúmgott eldhús og borðstofa á aðalhæð skapa notalega umgjörð fyrir samverustundir, matargerð og góðar stundir saman. Einnig er hægt að leigja íbúðirnar hverja fyrir sig, en gistileyfi er á húsinu og er það í fullri útleigu; aðalskipulagi og deiliskipulagi var breytt þannig að lóðin er atvinnulóð og húsið skráð sem gistihús með fullt og ótímabundið leyfi. Húsið myndi þess vegna henta vel sem hluti hótelrekstrar á svæðinu. Húsið er laust eftir samkomulagi og er hægt að fá það afhent með húsgögnum og innbúi utan listaverka og persónulegra muna.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Allar upplýsingar veita Kjartan Hallgeirsson lgfs. í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is og Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is.

Gamla Apótekið var byggt árið 1859 og var á þeim tíma eitt stærsta og glæsilegasta húsið á Íslandi - grunnflöturinn er stór og lofthæð mikil. Á árunum 2016 og 2017 endurbyggði Minjavernd húsið frá grunni - það var flutt af lóðinni, nýr grunnur steyptur og svo flutt á sinn gamla stað. Allt efni sem hægt var að endurnýta var notað aftur, þar með talinn viðarpanell á innveggjum. Húsið er byggt miðað við nýja byggingarreglugerð og ströngustu eldvarnarkröfur. Í raun er Aðalstræti 4 nýtt hús. Það eru ekki mörg hús á Íslandi sem hafa verið gerð upp af jafn mikilli kostgæfni. Aðalskipulagi og deiliskipulagi var breytt þannig að lóðin er atvinnulóð og húsið skráð sem gistihús með fullt og ótímabundið leyfi fyrir 12 gesti. Í húsinu eru þrjár íbúðir, stór íbúð á aðalhæð og tvær minni á efri hæð. Í kjallara eru sauna og sturtur ásamt skíðageymslu /þvottahúsi og stórri geymslu sem notuð er sem borðtennisherbergi. Húsið er hugsað þannig að fjölskylda eða vinahópur dvelji þar saman, allir hafi nóg pláss fyrir sig, en hittist svo í stóru eldhúsi og borðstofu á aðalhæðinni og eldi og borði saman. Einnig má leigja íbúðirnar hverja fyrir sig.

Íbúð 1, jarðhæð: 135 fermetrar, 2 svefnherbergi, tvö baðherbergi, bókaherbergi og stofa ásamt stóru eldhúsi og borðstofu fyrri 10-12 manns.
Íbúð 2, efri hæð: Eitt stórt svefnherbergi, eitt baðherbergi, stór stofa / eldhús og svefnsófi
Íbúð 3, uppi: Eitt lítið svefnherbergi, eitt baðherbergi, stór stofa / eldhús og svefnsófi.
Í kjallara er sauna og sturtur, ásamt þvottahúsi / skíðageymslu og aukaherbergi sem notað er sem borðtennisherbergi og geymsla. Heiturpottur ásamt úti sturtu. Kamínur í öllum íbúðum. Bílastæði á lóð fyrir 4 bíla. Snjóbræðsla á allri lóðinni.
                                                                                                               
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.  2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.  4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 5
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:20. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hraungata 5
Hraungata 5
210 Garðabær
168,8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
423
1000 þ.kr./m2
168.800.000 kr.
Skoða eignina Skessugil 22 íbúð 102
Opið hús:23. okt. kl 16:00-16:45
Skessugil 22 íbúð 102
603 Akureyri
92,7 m2
Fjölbýlishús
312
689 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Hjallabraut 45A
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin