Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Langholtsvegur 143

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
184.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
862.724 kr./m2
Brunabótamat
120.350.000 kr.
Byggt 1949
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2022771
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Miklaborg kynnir: Fallegt og sjarmerandi einbýlishús við Langholtsveg 143 í Reykjavík með auka íbúð í kjallara. Húsið er skráð 184,3 fm samkvæmt HMS, þar að auki eru 82,1 fm sem eru skráðir sem sameign, raun stærð á húsinu er því 266, 4 fm og þar af 24,5 fm bílskúr. Húsið stendur á 750 fm lóð með stórum og glæsilegum garði, sólpalli með heitum potti og öðrum stórum palli með köldu gróðurhúsi. Eignin er á tveimur hæðum og er aðalhæðin 112,4 fm en hefur verið stækkuð um 8 fm og samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum (voru þrjú), eldhúsi og auka inngangi við eldhúsið á neðri hæð. Íbúð á neðri hæði er skráð 47,4 fm en er talsvert stærri eða um 70 fm þar að auki er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi, gangur og geymsla. Neðri hæð hússins er því 129,5 fm og samanstendur af stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, gangi, sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi og geymslu. Stigi er niður á neðri hæðina en þar er jafnframt sérinngangur. Búið er að viðhalda húsinu vel í gegnum árin. Um er að ræða einstakt einbýlishús á góðum og vinsælum stað við Langholtsveg þar sem stutt er í alla hestu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma: 770-0500 eða iris@miklaborg.is


Efri hæð:

Forstofa: Rúmgóð og björt forstofa með parketi og glugga. Eldhús: Parketlagt eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu og eldhúskrók. Inngengt er úr eldhúsforstofu niður í neðri íbúð hússins. Baðherbergi: Sturtuklefi, hvítar innréttingar, upphengt klósett og hringlaga gluggi. Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Borðstofa: Björt parketlögð borðstofa með tveimur gólfsíðum stórum gluggum með útsýni út á svalir og garð. Arinn er í borðstofu. Stofa: Björt parketlögð stofa með 8 fm yfirbyggðri sólstofu, sem er ekki inn í fm tölu eignar. Útgengi út á svalir og stóran garð. Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með glugga á tvo vegu og stórum fataskápum. Hónaherbergið var áður tvö svefnherbergi.Svefnherbergi: Parketlagt svefnherbergi - nýtt sem sjónvarpsherbergi. Geymsla: Stigi er upp á stórt geymsluloft. Verönd : Sólpallur með heitum potti og annar sólpallur með köldu gróðurhúsi og barna-kastala.

Neðri hæð - Sérinngangur: Forstofa - Flísalögð forstofa með fatahengi. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, opnanlegt fag og hvít baðinnrétting. Svefnherbergi: Með Linolem dúk á gólfi. Hjónaherbergi: Flísalagt herbergi með glugga á tvo vegu. Stofa: Rúmgóð og flísalögð stofa. Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með glugga og lítið þurrkherbergi með glugga inn af því. Geymsla: ck 11 fm sameiginleg geymsla. Bílskúr: 24,5 fm bílskúr með tengi fyrir hleðslustöð. Teikning: fyrirliggjandi teikningar eru ekki í samræmi við núverandi skipulag hússins og eru kaupendur hvattir til að kynna sér það ítarlega. Allar nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma: 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nauthólar 2
Heitur pottur
Skoða eignina Nauthólar 2
Nauthólar 2
800 Selfoss
190.7 m2
Einbýlishús
514
561 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Kirkjuvegur 3
625 Ólafsfjörður
170.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
615
247 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Langagerði 5
Skoða eignina Langagerði 5
Langagerði 5
108 Reykjavík
351 m2
Einbýlishús
846
627 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarból 3
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarból 3
Heiðarból 3
230 Reykjanesbær
188.7 m2
Einbýlishús
624
572 þ.kr./m2
108.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin