Fasteignaleitin
Opið hús:10. júní kl 18:00-18:30
Skráð 6. júní 2026

Úugata 36 - GOTT VERÐ

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
239.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
153.700.000 kr.
Fermetraverð
642.559 kr./m2
Fasteignamat
124.650.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524813
Landnúmer
233836
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar lagnir
Raflagnir
Nýlegar raflagnir
Frárennslislagnir
Nýjar frárennslislagnir
Gluggar / Gler
Nýir gluggar
Þak
Nýtt þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll fasteignasala og Sölvi Sævarsson kynna í sölu: Glæsilegt vandað og vel skipulagt raðhús með 4 svefnherbergjum við Úugötu 36-40 í nýju fjölskylduvænu hverfi í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Húsið er tilbúið til afhendingar og afhendist fullbúið.
---- SÝNI SAMDÆGURS ----
Eignin er í heild skráð 239,2 m² skv. Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 27,9 m²

 
Nýbygging miðjuraðhús á tveimur  með innbyggðum bílskúr sem verður afhent fullklárað með frágengini lóð.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt vandaðri álklæðningu og er því viðhaldslítið.
Þakplatan er steypt. Gluggar eru verksmiðjuframleiddir ál / timbur gluggar. Gler er tvöfalt K-gler. Húsið er upphitað með gólfhitalögnum.

Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@valholl.is


Eignin telur fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús, geymsla, eldhús, stofa og borðstofa, útengt á stórar svalir frá borðstofu sem snúa í suðvestur, bílskúr.
Örstutt í leik- og grunnskóla, Reykjalundaskógur, Helgafell og Reykjafell í næsta nágrenni.

Neðri hæð skiptist í: Anddyri, tvö rúmgóð herbergi, sjónvarpsherbergi baðherbergi og þvottahús. Innangengt er í bílskúr úr anddyri.
Á efri hæð er rúmgóðar stofur, eldhús, hjónaherbegi, barnaherbergi og rúmgott baðherbergi með glugga.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Anddyri með rúmgóðum fataskáp og flísalögðu gólfi. Innangengt er í bílskúr úr anddyri sem er rúmgóður með epoxy á gólfi og rafmagnsopnun á bílskúrhurð.
Tvö rúmgóð barnaherbergi á neðri hæð bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum í gráum lit.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi og veglegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð. Vaskur í innréttingu.
Baðherbergi á neðri hæð er með flísum á gólfi og á veggjum við sturturými ásamt glerþili þar við. Innfelld tæki í vegg. Innrétting er plássmikil í gráum lit og eru efri skápar með speglahurðum og lýsingu þar við.
Hol/ sjónvarpsrými við hlið stiga upp á efri hæð er rúmgott með harðparketi á gólfi og glugga.
Geymsla á neðri hæð með harðparketi á gólfi.
Efri hæð:
Eldhús með innréttingum frá HTH, gert er ráð fyrir innfelldum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir ekki.
Borðstofa og stofa í opnu rými með rennihurð út á stórar svalir sem snúa í suðaustur.
Stofurými með mikilli lofthæð með innfelldri lýsingu gott útsýni er úr stofu í suðaustur.
Hjónherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott og bjart með opnanlegum glugga. Veggir við sturtu og innréttingu eru flísalagðir vönduðum 60c60 flísum og ná að lofti. Gólflísar eru einnig 60x60. Baðinnrétting er frá HTH og er í gráum tón og er speglaskápur með lýsingu ofan við innréttingu.
Innfelld tæki við sturtu og sturtugler þar við.
Hurð er á milli baðherbergis og barnaherbergis út í garð á efri hæð.
Barnaherbergi á efri hæð er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp frá HTH innréttingum.
Stigi á milli efri og neðri hæðar er með svörtu stálhandriði, stigi skilast án gólfefna.

Innréttingar og gólfefni: Innihurðar eru yfirfelldar hvítar frá Parka Interiors. Innréttingar í eldhúsi, baði og fataskápar eru frá HTH innréttingum, Harðparket er frá Birgisson. 
Gólfhiti er í öllu húsinu og er anhydrit í gólfum efri hæðar. Hanklæðaofnar eru á baðherbergjum.
Húsið er viðhaldslítið, einangrað að utan og klætt vandaðri álklæðningu.


Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@valholl.is 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 valholl@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
27.9 m2
Fasteignanúmer
2524813
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leynisbraut 30
Bílskúr
Skoða eignina Leynisbraut 30
Leynisbraut 30
300 Akranes
120.1 m2
Raðhús
312
689 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
IMG_2768.JPG
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Vorbraut 1 (302)
210 Garðabær
136.3 m2
Fjölbýlishús
322
1100 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 40
Bílskúr
Opið hús:10. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Úugata 40
Úugata 40
270 Mosfellsbær
239.2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Hávallagata 13
Skoða eignina Hávallagata 13
Hávallagata 13
101 Reykjavík
138.9 m2
Hæð
513
983 þ.kr./m2
136.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin