Snyrtileg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Víðimel 58 í vesturbæ Reykjavíkur.
RE/MAX og Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali kynna snyrtilega 4ra herbergja, 93,4 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi á horni Víðimels og Hofsvallagötu. Möguleiki er að gera fjórða svefnherbergið þar sem borðstofan er í dag. Samkvæmt FMR er íbúðin 89,1 m2 og geymslan 4,3 m2. Hér má sjá eignina í 3D: 3DNánari lýsing:Forstofan er flísalögð með skóskáp.
Gangur með parketi á gólfi.og fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingunni. Parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi,
frá stofunni er opið inn í borðstofu sem væri hægt að breyta í fjórða svefnherbergið ef vill.Hjónaherbergi er með fataskáp og parketi á gólfi
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu, sturtu og opnanlegum glugga.
Geymsla með hillum er með sérinngangi við inngang í íbúðina.
Innangengt er úr íbúðinni í
sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð í húsinu er með eigin vélar.
Skv. upplýsingum húsfélagsins hafa eftirfarandi framkvæmdir verið við fasteignina:2002 Fráveitulagnir endurnýjaðar
2012 Hús sprunguviðgert og gluggar málaðir að utan.
2017 Dren lagt við austurgafl hússins.
2018 Hellulagt plan við húsið .
2019 Allir gluggar og gler endurnýjað í íbúðinni að undanskildu glerinu fyrir utan baðherbergisgluggann.
2025 Skipt um rafmagnstöflu. Þak og gluggar í risi málaðir.
Víðimelur 58 er falleg eign á frábærum stað. Stutt er í helstu verslun og þjónustu og einnig skóla og leikskóla. Fallegar göngu- og hjólaleiðir, stutt í miðborgina, Háskóla Íslands og sundlaug Vesturbæjar o.fl.Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.