Fasteignaleitin
Skráð 5. feb. 2026

Lækjasmári 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
73.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
874.145 kr./m2
Fasteignamat
60.300.000 kr.
Brunabótamat
42.300.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð af 8
Garður
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2229664
Landnúmer
176066
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Skemmdir eru á tveimur stöðum í harðparketi við eldhús sem örsökuðust af því að veggur á  milli eldhúss og gangs var fjarlægður. Fyllt hefur verið upp í skemmdirnar með viðarfylli. 
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna bjarta, rúmgóða og vel skipulagða 2 herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérafnotafleti sem snýr til suðurs, í góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Lækjasmára 2 í Kópavogi.  
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:  Forstofa, gangur, eldhús opið að hluta við stofu, rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu, gott svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymsla í kjallara, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign hússins.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Mjög snyrtileg sameign, næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Settir hafa verið upp nokkrir rafhleðslustaurar. 
Frábær staðseting þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Smáratorg og Smáralind eru í göngufæri, ásamt heilsugæslu, líkamsræktarstöð, leikskólum og skóla. 

Skv skráningu HMS er eignin 73,1 fm2 þar af er 5,5fm2 geymsla í kjallara hússins. Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 2,17%. 

Nánari lýsing eignar:
Forsofa:
Fataskápur, með hvítlökkuðum hurðum, harðparket á gólfi.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting, helluborð, bakaraofn og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur opinn við stofu. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu, opið að hluta inn í eldhús, útgengt á verönd sem snýr til suðurs. 
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp með hvítlökkuðum hurðum. 
Baðherbergi: Flísalagt gólf, innrétting undir vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, sturta.
Verönd: Hellulögð verönd sem snýr til suðurs. Stærð sérafnotaflatar er 4 metrar fram og meðfram íbúðinni til suðurs.
Geymsla: Í sameign, 5,5f fm2.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/05/202349.050.000 kr.53.700.000 kr.73.1 m2734.610 kr.
29/03/201725.850.000 kr.33.500.000 kr.73.1 m2458.276 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engihjalli 9
Skoða eignina Engihjalli 9
Engihjalli 9
200 Kópavogur
78.1 m2
Fjölbýlishús
312
703 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb201
Lautargata 5 íb201
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 101
Lautargata 5 íb. 101
210 Garðabær
88 m2
Fjölbýlishús
312
953 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 201
Lautargata 5 íb. 201
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin