Bjarkarlundur 7 (Rósakot) í Aðaldal
– Einstakt sveitasetur í hjarta DemantshringsinsHraunhamar fasteignasala kynnir til sölu er Bjarkarlundur 7 (Rósakot), einstaklega vandað og rúmgott sveitasetur í Aðaldal, aðeins um 15 mínútur frá Húsavík og í stuttri akstursfjarlægð frá helstu náttúruperlum Norðurlands.
Rósakot stendur á 3.000 m2 gróinni og skjólgóðri lóð í fallegu hraun og birki umhverfi við Laxá í Aðaldal. Einstakur griðastaður þar sem kyrrð, náttúra og næði mynda sérstaka heild.
Eignin er langt frá því að vera hefðbundið sumarhús. Hér er um að ræða rúmgott og vel skipulagt sveitasetur með gistiaðstöðu fyrir allt að 13–14 manns. Svefnrými eru samtals fimm að meðtöldu gestahúsi og auka rými, auk rúmgóðra samveru rýma sem gera eignina einstaklega hentuga fyrir stórfjölskyldur, vinahópa eða útleigu.
Innandyra tekur við bjart og rúmgott aðalrými með aukinni lofthæð, sýnilegum viðarbjálkum og fallegum hlöðnum arni sem setur sterkan svip á húsið. Hér hefur verið lögð áhersla á gæði, hlýleika og notalegt andrúmsloft þar sem fjölskylda og vinir geta notið samveru allan ársins hring.
Einn af helstu kostum Rósakots er einstök útiaðstaða eignarinnar. Um 125 fermetra skjólgóð og mynstursteypt verönd tengir saman helstu rými hússins og skapar fallega heild. Þar er heitur pottur, rúmgóð samverusvæði og hlaðinn útiarinn sem gerir aðstöðuna sérstaklega glæsilega. Á björtum sumarkvöldum verður veröndin að náttúrulegum samkomustað þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar, fuglasöngs og fallegs umhverfis.
Staðsetning eignarinnar er einstaklega áhugaverð. Mývatn, Goðafoss, Ásbyrgi, Dettifoss, Hljóðaklettar og fjölmargir aðrir áfangastaðir Demantshringsins eru í þægilegri akstursfjarlægð. Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl og Skjálfandafljót eru jafnframt í næsta nágrenni og svæðið er þekkt fyrir veiði, útivist og fjölbreytta náttúru.
Rósakot hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og hefur í gegnum árin verið vettvangur fjölskyldusamveru, hátíðahalda og ótal góðra stunda. Nú er komið að nýjum eigendum að skrifa næsta kafla í sögu staðarins.
Á síðustu misserum hefur verið fjárfest í nýju og hagkvæmara hitakerfi sem hefur lækkað rekstrarkostnað eignarinnar verulega og bætt orkunýtingu hennar.
Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast vandaða og vel viðhaldna eign sem býður upp á bæði lífsgæði, útleigumöguleika og einstaka staðsetningu í einu vinsælasta ferðamannasvæði landsins.
Vandaður búnaður og hagkvæmur reksturRósakot hefur verið byggt með gæði, þægindi og langtímanotkun að leiðarljósi. Á síðustu misserum hefur verið fjárfest í nýju og hagkvæmara hitakerfi sem hefur lækkað rekstrarkostnað eignarinnar verulega og bætt orkunýtingu hennar.
Hitakerfi hússins er hægt að fjarstýra með símaappi sem gerir eiganda kleift að fylgjast með og stjórna hitastigi hússins hvar sem er. Rafmagns nuddpotturinn er jafnframt vaktaður og hægt að fylgjast með hitastigi hans í gegnum app, sem eykur öryggi og einfaldar umsjón. Einnig er hægt að kveikja og slökkva á honum í gegnum app.
Öflug þriggja fasa heimtaug, gólfhiti, vandaðar byggingarlausnir og undirbúningur fyrir frekari uppbyggingu gera Rósakot að einstaklega vel búinni eign sem hentar jafnt til eigin nota sem útleigu.
Helstu upplýsingar um eigninaBjarkarlundur 7 (Rósakot), 641 Húsavík
· Um 125,5 m2 skráð stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands
· Heildarrými eignarinnar er um 140 m2 að meðtöldum aukarýmum
· Allt að fimm svefnherbergi og gistiaðstaða fyrir 13–14 manns
· Gestahús og aukarými sem tengjast aðalhúsi með stórri mynstursteyptri verönd
· Tvær snyrtingar, þar af eitt baðherbergi með rúmgóðri sturtu
· Bjart og rúmgott samverurými með aukinni lofthæð, sýnilegum viðarbjálkum og hlöðnum arni
· Um 125 m2 skjólgóð verönd með heitum potti, samverusvæðum og hlöðnum útiarni
· Gólfhiti í aðalhúsi
· Sér smíðaðar og sprautulakkaðar innréttingar
· Tvöfalt gasfyllt K-gler í gluggum
· Öflug 50A þriggja fasa heimtaug
· Hagkvæmt hitakerfi með nýrri varmadælu sem hefur lækkað rekstrarkostnað verulega
· Undirbúningur og áhugaverðir möguleikar fyrir frekari uppbyggingu til staðar
· Eignin hefur verið nýtt bæði sem fjölskyldusetur og í útleigu með góðum árangri
· Staðsett á 3.000 m2 gróinni og skjólgóðri lóð í Aðaldal, í stuttri fjarlægð frá Húsavík, Mývatni og helstu náttúruperlum Demantshringsins
Fasteignamat næsta árs er 62,1 m.kr. Verð 57,7 m.kr. Skipti á minni eign koma til greina.Allar nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is og Glódís Helgadóttir lgf. í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 43 ár ! – Hraunhamar.is