Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Bárusker 4, 102, 245 Sandgerði Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum. Eldhús og stofa mynda opið alrými og frá stofu er útgengt á timburverönd með skjólveggjum. Íbúðin er með gólfhita, þvottaaðstöðu á baðherbergi og henni fylgir sérgeymsla. Laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit. Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 78,6 m², merkt 01-0102. Þar af er íbúð 75,7 m² og sérgeymsla, rými 0107, 2,9 m². Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Anddyri er með flísum á gólfi. Skápar eru við inngang. Eldhús er í opnu alrými með stofu. Innrétting er með dökkri viðaráferð að mestu og hvítum efri skápum ásamt ljósri borðplötu. Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð og háfur. Ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni. Stofa og borðstofa eru í samliggjandi alrými við eldhús. Gólfsíðir gluggar er í stofu og þaðan er útgengt á timburverönd. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Stærra svefnherbergið er með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Innan baðherbergis er jafnframt innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í anddyri og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni.
Sérgeymsla er 2,9 m² og merkt 0107.
Verönd og sérafnotaflötur: Frá stofu er útgengt á timburverönd með skjólveggjum. Samkvæmt samþykktum uppdrætti er 19,7 m² sérafnotaflötur við íbúðina.
Byggingarlýsing: Húsið er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.