Fasteignaleitin
Skráð 18. jan. 2025
Deila eign
Deila

Álfheimar 54

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
111.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
661.002 kr./m2
Fasteignamat
64.450.000 kr.
Brunabótamat
45.800.000 kr.
Mynd af Ragnheiður Rún Gísladóttir
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1961
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021144
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
1961
Raflagnir
endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
1961
Gluggar / Gler
endurnýjað 2020
Þak
endurnýjað að hluta 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
SELD með fyrirvara um fjármögnun. Mikill áhugi var á eigninni og er ég með áhugasama kaupendur á skrá.
Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir:
Falleg og vel skipulögð 111,8 fm 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð í snyrtilegu fjölbýli í Álfheimum 54. Mjög vinsæl og fjölsylduvæn staðsetning. Lofthæð er ca 255 cm. Húsið er teiknað af einum af okkar ástælasta arkitekt Sigvalda Thordarsyni og ber hans merki.  Gengið er niður aðeins hálfa hæð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Gott eldhús. Rúmgóðar suð-vestursvalir. Stutt í grunnskóla og hina ýmsu verslun og þjónustu auk þess sem örstutt göngufæri er í náttúruparadísina í Laugardal. 

Stutt er í alla helstu þjónustu eins og Glæsibæ með alla þá þjónustu sem þar er að finna og einnig í Skeifuna. Skóli og leikskóli eru í göngufæri án þess að þörf sé að fara yfir umferðargötu.

Anddyri með góðum sérsmíðuðum skápum. 
Stofa er rúmgóð og björt með gluggum á tveimur hliðum. Útgengi á góðar suðursvalir. 
Eldhús með fallegri innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél. er að hluta til opið við stofu. Stór gluggi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðum glugga. Sturta, upphengt klósett og tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum skápum.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum skápum.
Svefnherbergi III er rúmgott með góðum skápum.
Endurnýjað 2021 af eiganda, fljótandi parket á allri íbúðinni (nema baðherbergi) og innihurðir. 
Geymsla: 13,2 fm. sérgeymsla í kjallara.
Sameign: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. 
Lóð/Garður: Stór og sameiginlegur garður er bak við húsið.

Framkvæmdir á vegum húsfélagsins að Álfheimum 50-54. Viðhald undanfarin ár.
2004 - Skipt um útidyrahurðir inn í 3 stigaganga blokkarinnar
2007 - Skipt um svalahandrið og settar glerhliðar á allar svalir í húsinu. Rafmagnstöflur fyrir pr. stigagang endurnýjaðar. 
2012 - Drenað í kringum blokk garð megin og báða enda blokkarinnar.
2015 - Stigangur í nr. 54 var málaður, lögð ný teppi og sett nýtt plast á stigahandrið. Samhliða því þá var skipt um allar dyr inn í íbúðir og settar eldvarnarhurðir.
2020 - Skipt um alla glugga og svalahurð 
2020 - Þakið endurnýjað nema sperrur.
2020 - Blokkin múrviðgerð og máluð.
2020 - Eldvarnarhurðir settar í geymslu gang undir allri blokkinni. Samhliða var blokkin tekin út m.t.t. eldvarna og bætt með tilkomu slökkvitækja, reykskynjara og flóttaleið merkt.
2023 - Hleðslustöðvar á bílastæði 
2023 - Eldvarnarhurðir í sameign

Frábær staðsetning við hliðina á Laugardalnum með fjölbreytta þjónustu og verslun allt í kring. Líkamsræktarstöðin HreyfingTBR húsið er í göngufæri. Falleg útivistarsvæði í nágrenninu. Þá er stutt í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla ásamt íþrótta- og tómstundarstarfi.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/01/202142.850.000 kr.50.000.000 kr.111.8 m2447.227 kr.
19/02/201321.250.000 kr.25.700.000 kr.111.8 m2229.874 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfheimar 54
Opið hús:30. jan. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Álfheimar 54
Álfheimar 54
104 Reykjavík
132.2 m2
Fjölbýlishús
413
567 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 28
Skoða eignina Álfheimar 28
Álfheimar 28
104 Reykjavík
118.3 m2
Fjölbýlishús
412
654 þ.kr./m2
77.400.000 kr.
Skoða eignina Sæviðarsund 31
Bílskúr
Skoða eignina Sæviðarsund 31
Sæviðarsund 31
104 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
412
649 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 6
Skoða eignina Ljósheimar 6
Ljósheimar 6
104 Reykjavík
105.8 m2
Fjölbýlishús
413
708 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin