Fasteignaleitin
Opið hús:13. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 11. ágúst 2022

Línakur 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
130.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
878.440 kr./m2
Fasteignamat
99.350.000 kr.
Brunabótamat
72.700.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sérinng.
Fasteignanúmer
2284319
Landnúmer
202933
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð, falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri verönd með glæsilegu útsýni til suðurs og vesturs yfir Garðabæinn og út að Keili. Íbúðin hefur fengið miklar endurbætur og er einstaklega falleg. Þrjú góð svefnherbergi eru í eigninni. Baðherbergið er rúmgott með bæði baðkari og sér sturtu. Þvottaherbergið er með glugga.  Sérinngangur er í allar íbúðir og því lítil sameign í húsinu. Gengið er að íbúðinni beint frá bílastæði í því aðgengi sérlega gott og engir stigar. Stutt er í alla helstu þjónustu hvort sem maður leitar í kjarna Garðabæjar eða niður í Smárann í Kópavogi. Leik-, grunn- og fjölbrautaskóli er í göngufjarlægð frá eigninni.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.  Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:

Gengið er að íbúðinni beint frá bílastæðinu. Engar tröppur er að henni. Íbúðin er á enda hægra megin og hefur því glugga í þrjár áttir og er því sérlega björt.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fjórföldum hvítum fataskáp og fallegum dökkgráum flísum á gólfi.
Eldhús: Þegar komið er inn úr forstofunni er komið inn i opið rými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu. Í eldhúsinu er falleg innréttingu á einn vegg + eyja. Innrétting er hvít og borðplatan er steingrá. Fallegt nýlegt vínylparket er á gólfi.
Stofa + borðstofa: Fyrir framan eldhúsið er borðstofa og setustofa saman í opnu rými. Fallegt nýlegt vínylparket er á gólfi. Útgengi er frá stofunni út á timburverönd sem snýr í suður. Glæsilegt útsýni er frá stofunni og af veröndinni til suðurs yfir Garðabæ og út yfir suðurnesin og að Keili.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott bæði með baðkari og sér sturtu. Opnanlegur gluggi er fyrir ofan baðkarið. Falleg dökk innrétting er undir vaski með miklu skápaplássi. Dökkar flísar eru á gólfi og á vegg hjá baðkari, aðrir veggir eru með ljósum flísum. Stór spegill og góð lýsing er fyrir ofan vaskaborðið.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með stórum fjórföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Fallegt vínylparket er á gólfi.
2 x Barnaherbergi: Bæði barnaherbergin eru með tvöfaldum hvítum fataskápur og fallegu vínylparketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Sérþvottaherbergi er innan íbúðar með opnanlegum glugga. Flísar eru á gólfi og hvít innrétting með efri og neðri skápum og vinnuborði.
Geymsla: Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni. Geymslan er skráð 11,3 fm.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/10/202264.850.000 kr.97.000.000 kr.130.8 m2741.590 kr.
23/08/201329.350.000 kr.40.000.000 kr.130.8 m2305.810 kr.
28/11/200729.560.000 kr.36.950.000 kr.130.8 m2282.492 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásabraut 6
Bílskúr
Skoða eignina Ásabraut 6
Ásabraut 6
300 Akranes
125.6 m2
Raðhús
313
697 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Leynisbraut 23
Skoða eignina Leynisbraut 23
Leynisbraut 23
300 Akranes
135.4 m2
Parhús
413
688 þ.kr./m2
93.200.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 34
Skoða eignina Huldubraut 34
Huldubraut 34
200 Kópavogur
232.2 m2
Parhús
724
817 þ.kr./m2
189.800.000 kr.
Skoða eignina Einbúablá 44A
Bílskúr
Skoða eignina Einbúablá 44A
Einbúablá 44A
700 Egilsstaðir
115.5 m2
Parhús
312
541 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin