Skráð 16. feb. 2026

Naustahvammur 58F - ENDABIL

Atvinnuhúsn.Austurland/Neskaupstaður-740
98.9 m2
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
403.438 kr./m2
Fasteignamat
17.850.000 kr.
Brunabótamat
28.900.000 kr.
Byggt 2023
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2531528
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
12
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
8,31
Upphitun
Rafmagnskynding - ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Skjal nr. 446-S-000060/2025. Yfirlýsing. viðauki við kaupsamning E-525/2024.
Samþykki kaupanda fasteignar á yfirtöku á kvöð vegna leiðréttingu innskatts og yfirlýsing um ætluð not hans að fasteign.
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NAUSTAHVAMMUR 58F, 740 Neskaupstaður, endabil. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
Naustahvammur 58F er iðnaðar- og geymsluhúsnæði á einni hæð sem er skipt niður í 11 séreiningar.
Birt stærð eignar er 98.9 m² samkvæmt skráningu HMS. 

Áhvílandi vsk-kvöð er á eigninni og miðast söluverð eignar við yfirtöku á vsk-kvöð.
Kaupandi getur yfirtekið vsk-kvöð ef hann er með opið virðisaukaskattsnúmer.  
Ef kaupandi tekur EKKI yfir vsk-kvöð er kaupverð hennar kr. 44.000.000.


Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Húsið er límtréshús og er byggt upp sem 11 sjálfstæð iðnaðar- og geymslubil, auk sameiginlegs inntaksrýmis.  
Steyptar undirstöður, steypt vélslípuð gólfplata og límtrésburðarvirki ofan gólfplötu.
Útveggjaklæðning er lárétt samlokueining með steinullarkjarna, þykkt 149mm. Þak er klætt með samlokueiningum með steinullarkjarna, þykkt 173mm.
Iðnaðarhurð er galvanhúðuð standandi fellihurð, breidd u.þ.b.4 metrar, hæð u.þ.b. 4,2 metrar, gönguhurð úr áli.
Milliveggir eru úr sléttri samlokueiningu með steinullarkjarna, þykkt 150mm. Litur á vegg- og þakklæðningu utanhúss er silfurgrár að utan en hvítur að innan.

Milliloft er uppsett yfir hluta rýmisins, timburstigi er upp á milliloft. 
Húsnæðið er hitað upp með varmadælu „loft í loft". Tvö rennuniðurföll eru í gólfi sem og stútur fyrir fráveitu skólps á tveimur stöðum.
Fráveita af gólfi er veitt í sameiginlega olíuskilju sem staðsett er innan lóðar.
Í bilinu er greinatafla sem sér viðkomandi bili fyrir rafmagni ásamt því að hafa stækkunar möguleika t.d. fyrir hleðslustöð eða annan rafbúnað sem kann að bætast við.
Í bilinu er staðsettur einn tenglakassi á vegg með einfasa tenglum ásamt 16A og 32A þriggja fasa tenglum
Ídráttarrör fyrir fjarskiptalagnir er frá lóðarmörkum að inntaksrými og þaðan í hvert bil fyrir sig.
Sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi er uppsett með útstöðum í hverju bili en stjórnstöð í inntaksrými. Slökkvitæki er við útgang.

Lóð er að stærstum hluta malbikuð með niðurföllum. 5 metra langt séreignarsvæði er út frá hverju bili, bílastæði eru inn á sérafnotafleti hverrar eignar. 
Óheimilt er að geyma óskráðar bifreiðar, gáma rusl eða annars konar úrgang á lóð kringum húsnæðið. Á það við bæði um sérgreinda lóð sem og sameign.
Ekki er gert ráð fyrir sorphirðu á svæðinu. Lóðin er 3.332,0 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 253-1528 Naustahvammur 58F, Fjarðabyggð.

Stærð: Iðnaður 98.9 m².
Brunabótamat: 28.900.000 kr.
Fasteignamat:  17.850.000 kr. 
Byggingarár: 2023.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.0112 Séreign. Rými 01.0112 Iðnaðarbil 98.9  Brúttó m².
01.X  Sameign allra 01X Tæknirými 0.4 Brúttó m²​​​​​​.
Landeignanúmer: 235321. Iðnaðar og athafnalóð 3.332,0 m².

Áhvílandi virðisaukaskattskvöð er á eigninni og miðast söluverð eignar við yfirtöku kaupanda á virðisaukaskattskvöð.
Kaupandi yfirtekur virðisaukaskattskvöð þ.e. leiðréttingarskylda vegna eftirstöðva tímabils samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 192/1993.
Ef kaupandi tekur yfir vsk-kvöð er kaupverð kr. 39.900.000. Ef kaupandi tekur EKKI yfir virðisaukaskattskvöð verður kaupverð hennar kr. 44.000.000.
Við kaup á eigninni án yfirtöku á vsk-kvöð sér seljandi um að greiða upp vsk-kvöð og aflýsa henni fyrir útgáfu afsals.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/06/202413.900.000 kr.34.800.000 kr.98.9 m2351.870 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin