Fasteignaleitin
Opið hús:18. júní kl 17:15-17:45
Skráð 11. júní 2026

Básahraun 22

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
231.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
517.927 kr./m2
Fasteignamat
83.650.000 kr.
Brunabótamat
124.050.000 kr.
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2212122
Landnúmer
171849
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagðar í lagi / Skipt um 2016.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Ca. 70 fm suðvestur sólpallur á baklóð.
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Básahraun 22, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða einstaklega glæsilegt og vel viðhaldið 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 231,5 fermetrar, þ.a. er íbúðarhluti 185 fm. og bílskúr 46,3 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með  ca. 70 fm suðvestur sólpall og heitum potti. Húsið er vel staðsett innarlega í botnlanga. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í anddyri, stofu og borðstofu, sjónvarpsstofa / arinstofa, eldhús, hol / gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan bílskúr / geymsla.

Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. 
Stofa / sjónvarpsstofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Borðstofa: Með parket á gólfi.
Arinstofa: Arinstofa með glæsilegum arni og náttúruflísum á gólfi og útgengi út á suðvestur sólpall.
Eldhús: Með góðri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, 2 bakaraofnar og er annar þeirra combi ofn, spanhelluborð og vifta, náttúruflísar á gólfi. 
Hol / gangur: Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með stórum fataskápum og vinylparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, baðker og stór sturtuklefi, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Nýleg innrétting fyrir þvottavélar í vinnuhæð og skóskápur, vinnuborð og vaskur, gönguhurð út í anddyri, flísar á gólfi. 
Bílskúr / geymsla: Tvöfaldur 46,5 fm. bílskúr, gönguhurð út í anddyri, nýjar bílskúrshurðir, rúmgott geymsluloft, rafhleðslustöð sem fylgir með, vinnuborð, kalt vatn og hiti, inn af bílskúr er góð geymsla með hillum, flísar á gólfi.

Húsið: Húsið er steypt og byggt 1983. Húsið hefur alla tíð fengið gott viðhald. Allar gardínur geta fylgt með. Flest ljós geta fylgt með. Vínyl parket í herbergjum var endurnýjað fyrir ca. 7 árum og annað parket var endurnýjað 2008. 
Lóð: Einstaklega glæsileg 675 fm. lóð. Framan við húsið er hellulögð stétt að húsi og pallur við anddyri er flísalagður. Framan við bílskúr er hellulögð innkeyrsla með hitalögn. Á norður og vestur hlið er hellulögð stétt, á suðvesturhlið er skjólgóður ca. 70 fm sólpallur með heitum potti, á suður og austurhlið er svo gras og fallegur gróður. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Hér er um að ræða virkilega fallegt og vel viðhaldið fjölskylduhús á góðum stað - Stutt er í grunn- og leikskóla, sundlaug og íþróttahús, verslanir, alla helstu þjónustu og náttúruna - Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1983
46.5 m2
Fasteignanúmer
2212122
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.500.000 kr.
Helgafell Fasteignasala
www.helgafellfasteignasala.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrargata 35
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Mýrargata 35
Mýrargata 35
101 Reykjavík
73.6 m2
Fjölbýlishús
312
1357 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 32
Bílskúr
Skoða eignina Naustabryggja 32
Naustabryggja 32
110 Reykjavík
230.4 m2
Raðhús
533
560 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Klapparhlíð 38
Bílskúr
Skoða eignina Klapparhlíð 38
Klapparhlíð 38
270 Mosfellsbær
139.8 m2
Raðhús
413
929 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 37
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 37
Lindargata 37
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1110 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin