Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2024
Deila eign
Deila

Indriðastaðahlíð 152

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
87.3 m2
4 Herb.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
571.592 kr./m2
Fasteignamat
44.300.000 kr.
Brunabótamat
41.300.000 kr.
Mynd af Halldór Már Sverrisson
Halldór Már Sverrisson
Byggt 2017
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2333655
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Starfsmanni Atvinnueigna hefur ekki sérstaklega verið benta á galla á eigninni. 
Halldór Már Sverrisson lögg.fasteignasali kynnir glæsilegt 71,3 fm fm, 3ja herbergja sumar- / heilsárshús ásamt 16 fm gestahúsi með hitaveitu að Indriðastaðahlíð 152, 311 Borgarbyggð. Húsið er byggt á árunum 2016 til 2019 lokasamþykkt var svo árið 2020. Góð, rúmgóð og sólrík 120 fm viðarverönd með heitum potti.
Húsið stendur hátt í landi Indriðastaða á 4375 fm eignarlóð í lokuðu hverfi með aðgangsstýringu og er staðsett framalega í Skorradal. Góð aðkoma er að eigninni.

Eignin skiptist í: Anddyri, gang, hol, 2 svefnherbergi, alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu, baðherbergi, þvottahús með salerni.  Afar rúmt er um eignina og mun því halda sínu óskerta stórbrotna útsýni um Skorradal, til Snæfellsjökuls og upp í Skarðsheiðina.


Eignin Indriðastaðahlíð 152 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 230-6544, birt stærð 71,3 fm. eigninni fylgir 16 fm gestahús sem er óskráð. Samtals eru bæði húsin 87,3 fm.

Nánari Lýsing:
Anddyri: Parkert á gólfi, fatahengi.
Alrými: Samliggjandi eldhús og stofa.
Eldhús: Falleg dökk innrétting með góðu geymslu- og vinnuplássi. Útgengt út á pall úr eldhúsi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa- og borðstofa með aukinni lofthæð, út úr gluggum er stórglæsilegt óhindrað útsýni út á stórbrotna náttúrufegurð.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með dúk á gólfi og á veggjum inni í sturtu. Innangeng þröskuldalaus sturta með glerskilrúmi, upphengt klósett og baðinnréttingu með skúffum, vask og spegli fyrir ofan vask.
2 svefnherbergi: Bæði með parket á gólfi og kommóðum. 
Geymsla: er lítil með með glugga sem  hægt er að nota sem herbergi. 
Gestahús: 16 fm með parket á gólfi.
Útiverönd: um 120 fm viðarverönd með heitum potti.
Aðkoma: Góð og þæginleg aðkoma að húsinu. Húsið er staðsett í lokuðu hverfi með öryggishlið/aðgangsstýringu fremst í Skorradal. Góð bílastæði fyrir framan inngang.

Afar glæsilegt sumar- / heilsárshús á vinsælum, fallegum og friðsælum stað fremst Skorradalnum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu í Borganesi. 
Akitekt eignarinnar er Magnús H Ólafsson, sem hannaði eignina fyrir íslenskar aðstæður.


Allar nánari upplýsingar veitir:
Halldór Már Sverrisson lögg. fasteignasali, viðskiptafræðingur. og leigumiðlari í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is

Skoðunarskylda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Atvinnueign því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
16 m2
Fasteignanúmer
2333655
Byggingarefni
Timbur
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngborgir 6
Skoða eignina Lyngborgir 6
Lyngborgir 6
805 Selfoss
86 m2
Sumarhús
413
579 þ.kr./m2
49.800.000 kr.
Skoða eignina Brekkuheiði 7
Skoða eignina Brekkuheiði 7
Brekkuheiði 7
806 Selfoss
107 m2
Sumarhús
413
465 þ.kr./m2
49.800.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 7
Skoða eignina Hofsvík 7
Hofsvík 7
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
676 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 2
Skoða eignina Hofsvík 2
Hofsvík 2
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
676 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin